Tæknilegar kröfur til vinnslueininga (D1) - cosphi vindlunda

Markmið og tilgangur
Greiningar og hönnun
Ritun og samráð stóð yfir á árinu 2020
Umsagnarferli
Umsagnarferli viðskiptavina stóð yfir frá 21.10.2020 - 9.11.2020
Samþykktarferli
Skilmálinn var sendur til samþykktar til Orkustofnunar 15.12.2020, dreginn til baka í des 2021 vegna samræmingar með dreifiveitum en sendur aftur 13. des 2022.
Gildistaka
Gildistaka 7.júní 2024

Markmið með uppfærslunni er að setja kröfur til orkulunda um aflstuðul (vindlunda) til samræmis við kröfur annarra flutningsfyrirtækja og uppfylla reglugerð ESB. 

  • Þörf er á að uppfæra skilmála um tæknilegar kröfur til vinnslueininga til að skilgreina kröfur um hlutfall milli raun- og launaflsvinnslu (aflstuðul, cos(f)) orkulunda.
  • Eðli orkulunda er allt annað en virkjana sem við þekkjum og eru í rekstri á Íslandi í dag (sýnkrónrafölum) og eru þeir einnig byggðir upp á annan hátt.
  • Víða hafa flutningsfyrirtæki sett aðrar kröfur á tæknilega eiginleika orkulunda enda er lagt upp með það í reglugerð ESB um tengingu vinnslueininga (reglugerð ESB 2016/631).

Breytingar á skilmála D1 um kröfur til vindlunda um aflstuðul voru kynntar í október 2020 og sendar í samþykkt til Orkustofnunar í desember sama ár. Skilmálinn var dreginn til baka úr samþykkt hjá Orkustofnun vegna samræmingar á kröfum til vinnsluaðila með dreifiveitum. Dreifiveitur vinna að sameiginlegum skilmála og áformað var að kynna breytingar fyrir viðskiptavinum þegar drögin liggja fyrir. Skilmáli dreifiveitna liggur enn ekki fyrir í desember 2022. 

Mikilvægt er að halda þróun netmála Landsnets áfram og því hefur verið ákveðið að senda lokaútgáfuna sem send var í samþykkt til Orkustofnunar í desember 2020 aftur í samþykkt til Orkustofnunar í desember 2022. Um er að ræða útgáfu 3.0 sem finna má neðar á síðunni.  

Ferli við gerð netmála Landsnets er opið og gagnsætt. Allar umsagnir sem berast verða birtar opinberlega á heimasíðunni okkar ásamt viðbrögðum okkar við þeim.

Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við okkur á netfangið vidskipti@landsnet.is

Fylgiskjöl

Drög til umsagnar / Draft for consultation

DRÖG - skilmáli um tæknilegar kröfur til vinnslueininga (D1) - útgáfa 3.0

DRÖG - skilmáli um tæknilegar kröfur til vinnslueininga (D1) - útgáfa 3.0 með breytingum frá útgáfu 2.0

DRAFT - Grid Code Technical requirements for generators (D1) - version3.0 - with track changes from version2.0

DRAFT - Grid Code D1 technical requirements for generators - version3.0 draft - clean

Umsagnarferli

Skilmáli D1 - tæknilegar kröfur til vinnslueininga - 3.0 - viðbrögð við umsögnum

Lokaútgáfa af skilmálanum, útg.3.0

Skilmáli D1 um tæknilegar kröfur til vinnslueininga útg. 3.0

Grid Code D1 technical requirements for generators - version 3.0