Öruggt rafmagn

Frammistöðuskýrsla raforkukerfisins fjallar um loforðið „öruggt rafmagn, gæði og öryggi flutningskerfisins til framtíðar“. Skýrslan tekur mið af skyldum Landsnets samkvæmt reglugerð nr. 1048/2004, um gæði raforku og afhendingaröryggi, sem og innri markmiðum fyrirtækisins. Hún er byggð á tölulegum gögnum úr flutningskerfinu og truflanaskýrslum frá árinu 2016 til síðasta heila árs. Allar truflanaskýrslur eru skráðar í samræmi við reglur starfshóps um rekstrartruflanir (START).

Lykilmarkmið

Landsnet setur sér markmið, sem samþykkt eru af Orkustofnun, um eftirfarandi afhendingarstuðla samkvæmt reglugerð nr. 1048/2004:

  1. Stuðull um rofið álag (SRA)
  2. Stuðull um meðallengd skerðingar, straumleysismínútur (SMS)
  3. Kerfismínútur (KM)

Tafla 1 sýnir samanburð á markmiðum við útreiknaða stuðla. Markmiðin og raungildin miða við forgangsorkuskerðingu vegna bilana í flutningskerfinu.

Tafla 1: Markmið um afhendingaröryggi.

Lykiltölur

Hér fyrir neðan eru lykiltölur úr rekstri flutningskerfisins.

Tafla 2: Lykiltölur úr rekstri flutningskerfisins.