Við höfum það markmið að draga úr því kolefnisspori sem hlýst af starfseminni og höfum við greint þá þætti sem hafa áhrif á kolefnissporið okkar og skipt þeim niður í umfang 1,2 og 3 eftir stöðlum Greenhouse Gas Protocol.
Við erum frábrugðin mörgum félögum þegar kemur að losunarþáttum. Í umfangi 1 sem nær yfir beina losun frá starfseminni er meðal annars SF6 gas sem er einangrunarmiðill í rafbúnaði í tengivirkjum, í umfangi 2 sem er óbein losun er meðal annars flutningstöp sem eru þau töp sem verða við flutning raforku í flutningskerfinu. Umfang 3 nær yfir óbeina losun eins og flug starfsmanna og úrgang frá félaginu. SF6 og flutningstöp eru þeir losunarþættir sem valda mestri losun í starfsemi Landsnets.
Notast er við grænt bókhald sem haldið er utan um kolefnislosun fyrirtækisins. Bókhaldið gefur yfirsýn yfir kolefnislosunina og gerir okkur kleift að fylgjast með þróun losunar í rekstrinum. Kolefnislosun er tekin saman árlega og greint er frá henni í ársskýrslu Landsnets.
Í stefnunni okkar kemur fram að félagið stefni að kolefnishlutleysi árið 2030 og er unnið að verkefninu kolefnishlutlaust Landsnet innan félagsins. Markmið verkefnisins er að greina núverandi stöðu á þeim þáttum sem eru í útreikningi á kolefnissporinu og útbúa aðgerðaráætlun til næstu ára um hvernig félagið stefni að því að vera kolefnishlutlaust árið 2030.
Nálgast má nánari upplýsingar um umhverfisstefnuna okkar hér.