Í Landsnetshlaðvarpinu fara fram líflegar umræður um raforkumál, flutningskerfið og lífsgæðin sem við flytjum, og framtíðina — sem í okkar huga er ljós. Við fáum til okkar sérfræðinga sem kafa ítarlega ofan í orkumarkaðinn, orkuskipti og mikilvæg verkefni framundan í orkumálum.

Kerfisjöfnuður, afhendingaröryggi og orkunýting

Hvernig þróast framboð og eftirspurn raforku næstu fimm árin? Hvaða áskoranir eru fram undan í flutningskerfinu – og hvernig bregðumst við við þeim? Í þessum þætti rýnum við í Kerfisjöfnuðarskýrslu Landsnets, árlega greiningarskýrslu sem gefur innsýn í orkukerfið og þær sviðsmyndir sem geta blasað við á næstu árum. Skýrslan er lykilverkfæri við ákvarðanatöku um afhendingaröryggi, orkunýtingu og orkuskipti.

Gestur þáttarins er Árni Baldur Möller sérfræðingur í kerfisgreiningum en hann og Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi spá hér í spilin, ræða stærstu áherslurnar og varpa ljósi á þær sviðsmyndir sem gætu mótað framtíð raforkukerfisins.

Hlaðvarpið veitir hlustendum einstaka innsýn í þær áskoranir sem fylgja þróun rafmagnsframleiðslu og notkun á tímum breyttra aðstæðna – með áherslu á framtíðarlausnir og nýjustu tækni – og hvernig við getum öll stuðlað að sjálfbærri framtíð í rafmagnsframleiðslu og notkun.

Markmið okkar er að veita dýpri innsýn í þær breytingar sem eru að eiga sér stað og hvaða tækifæri þær fela í sér.

Merki og mynd Stúdíó Kaiku Sound

Landsnetshlaðvarpið er tekið upp í Studio Kaiku Sound, Garðabæ.

Stjórn upptöku er í höndum Adams Thors Murtomaa.

Kerfisjöfnuður, afhendingaröryggi og orkunýting

4. september 2025

Hvernig þróast framboð og eftirspurn raforku næstu fimm árin? Hvaða áskoranir eru fram undan í flutningskerfinu – og hvernig bregðumst við við þeim? Í þessum þætti rýnum við í Kerfisjöfnuðarskýrslu Landsnets, árlega greiningarskýrslu sem gefur innsýn í orkukerfið og þær sviðsmyndir sem geta blasað við á næstu árum. Skýrslan er lykilverkfæri við ákvarðanatöku um afhendingaröryggi, orkunýtingu og orkuskipti.

Gestur þáttarins er Árni Baldur Möller sérfræðingur í kerfisgreiningum en hann og Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi spá hér í spilin, ræða stærstu áherslurnar og varpa ljósi á þær sviðsmyndir sem gætu mótað framtíð raforkukerfisins.

Úr frystihúsi í friðagæslu og nú verkefnastjóri kerfisáætlunar

kerfisáætlun

20. ágúst 2025

Hvað eiga kerfisáætlun, friðargæsla, stjórnmálafræði og frystihús í Þorlákshöfn sameiginlegt? Jú – Herdísi Sigurgrímsdóttur. Hún er manneskjan sem stýrði frábærum hópi sem vann nýjustu kerfisáætlunina okkar – sem hún segir vera hryggjastykkið í starfsemi Landsnets. Í þætti dagsins spjöllum við við Herdísi um hvernig hún sér kerfisáætlun fyrst og fremst sem samfélagsþróun en líka um framtíðarorkugjafa, hjartslátt, nýja kynslóð byggðalínu, launafl og lífið og reynsluna sem hún kom með til Landsnet.

Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk?

21. júlí 2025

Í þessum þætti rýna þau Steinunn, Hallur og Einar í stafræna landslagið, hvernig hefur vefurinn þróast, hvaða hlutverk gegna heimasíður í dag og hvernig hafa samfélagsmiðlar breytt leiknum? Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk?

Þau ræða þróunina, staðreyndirnar, möguleikana og jafnvel heimspekina. Hvort sem þú ert forritari, markaðsmaður eða einfaldlega forvitin um hvað gerist á bak við skjáinn, þá er þetta þátturinn fyrir þig.

Á endanum snýst þetta bara um fólk

8. júlí 2025

Í þessum þætti fáum við Hólmgrím Elis Bragason að hljóðnemanum í Landsnetshlaðvarpinu.

Elli, eins og hann er alltaf kallaður, er sérfræðingur á mannauðssviðinu okkar hjá Landsneti. Hann settist niður með Steinunni Þorsteinsdóttur og ræddi áherslur í mannauðsmálum, mikilvægi samskipta og hvernig menning innan fyrirtækja hefur áhrif á fólkið – og árangurinn... já, og líka hvort lífið sé blómabeð.

Áhugavert, hreinskilið og fullt af hugvekjum – smelltu á play og hlustaðu.

Í stígvélum á vaktinni

reynslusagan

26. júní 2025

Sigurður Pétur Ólafsson – Spói – lagði nýverið stígvélin á hilluna eftir heil 45 ár í geiranum, þar af 20 í stjórnstöð Landsnets — eða allt frá stofnun.

Hann settist niður með Margréti Evu Þórðardóttur og Steinunni Þorsteinsdóttur og sagði þeim sögur frá tímanum í Sigöldu og Hrauneyjum, ræddi vatn og virkjanir — og flugið og flugvélasmíði, sem hafa verið honum hugleikin frá unga aldri.

Orkuskiptin og orkugeymslur

orkuskiptaskólinn

30. maí 2024

Gnýr Guðmundsson skólastjóri Orkuskiptaskólans og Magni Pálsson yfirkennari, okkar helstu sérfræðingar í orkuskiptunum á spjalli um þetta mikilvæga málefni.

Raforkuspáin og orkuskiptin

orkuskiptaskólinn

09. október 2023

Nýlega kom út ný raforkuspá Landsnets. Í henni kemur meðal annars fram að ekki sé útlit fyrir að fullum orkuskiptum verði náð árið 2040 eins og markmið stjórnvalda ganga út á, heldur 10 árum síðar. Hún Svala Birna Þórisdóttir vann að útgáfu Raforkuspárinnar og kom í heimsókn í Orkuskiptaskólann til þeirra Magna Þórs Pálssonar og Gnýs Guðmundssonar og sagði frá helstu niðurstöðum vinnunnar.

Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél ?

orkuskiptaskólinn

16. maí 2023

Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél? Þetta og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt í glænýjum þætti af Orkuskiptaskólanum þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson eru við stjórnvölinn.

Orkuskiptin, innviðir og orkuskortur - Förum vel með auðlindina

orkuskiptaskólinn

03. janúar 2022

Verið velkomin í Orkuskiptaskólann þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson leiða þig í allan sannleika um orkuskiptin. Hvað felst í orkuskiptum, hafa orkuskiptin áhrif á mitt líf eða er þetta kannski bara spurning um að koma öllum á rafmagnsbíla?

Eigum við orku í orkuskiptin, mun orkuskortur ráða hraða orkuskipta, er hægt að geyma rafmagn ?

orkuskiptaskólinn

13. desember 2021

Hlustið og fræðist með þeim Gný Guðmundssyni skólastjóra Orkuskiptaskólans og Magna Pálssyni yfirkennara en þeir eru okkar helstu sérfræðingar í þessum málaflokki.

Orkuskiptin - hvað, hvernig, hvenær?

orkuskiptaskólinn

26. nóvember 2021

04. september 2025

08. júlí 2025

Draumar, Döðlur og rafmagn

vinnustaðurinn

11. júní 2025

Guðrún Ýr Guðmundsdóttir eða Gugga er nýjasti viðmælandi Landsnetshlaðvarpsins.

Hún er sumarstarfsmaður hjá okkur, klár verkfræðingur og tónlistarkona í hljómsveitinni Dóra og Döðlurnar. Í þessum þætti segir hún frá því hvernig hún eltir bæði draumana sína í tækni og tónlist, af hverju það er ekki nauðsynlegt að velja bara eitt og auðvitað hvernig lífið hjá Landsneti er að birtast henni.

Þetta er þáttur um hugrekki, fjölbreytileika og leiðina til Landsnets - ekki missa af Guggu.

Samtal við samfélagið

26. maí 2025

Samtalið skiptir okkur hjá Landsneti miklu máli – og í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins ræða Steinunn, Einar, Hlín og Valgerður um mikilvægi góðs samtals við fólkið í nærsamfélagi raflínanna okkar. Hvernig ætlum við að hlusta, miðla og byggja traust? Hvaða lærdóma höfum við dregið – og hvert stefnum við

Ef lífið væri leikskóli — væri þá Landsnet staðurinn?

vinnustaðurinn

22. apríl 2025

Hvað gerist þegar sameindalíffræðingur, heimspekingur og sagnfræðingur setjast saman við hlaðvarpsmíkrafóninn og ræða orkumál? Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fékk þá Hall Þór Halldórsson vefstjóra og Erling Fannar Jónsson verkefnastjóra í spjall þar sem óvæntar tengingar, ný sjónarhorn og samtal varð til - ekki missa af þessum þætti af Landsnetshlaðvarpinu.

Vörumerki, orkufyrirtækin og fólkið sem elskar að tala um það

09. apríl 2025

Í Landsnetshlaðvarpsþætti dagsins fá Steinunn Þorsteindóttir upplýsingafulltrúi og Einar S. Einarsson, forstöðumaður skrifstofu forstjóra hjá Landsneti, til sín að hljóðnemanum þær Heiðu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Orkusölunni, og Birnu Lárusdóttur, upplýsingarfulltrúa hjá HS Orku – og saman ræða þau ímynd, traust og þá list að tala um rafmagn með hjartanu. Ekki missa af þessum þætti því þeim leiðist ekki að ræða um vörumerki og orkugeirann.

Leifur Ingimundur og leiðin til Landsnets

vinnustaðurinn

20. mars 2025

Leiðin til Landsnets og sánuferðir til Finnlands var á meðal þess sem þau Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi og Leifur Ingimundur Runólfsson einn af nýjustu liðsmönnum Landsnets spjölluðu um í þessum Hlaðvarpsþætti. Ekki missa af þessu skemmtilega spjalli – Leifur og og leiðin hans til Landsnets.

Framtíðarvinnustaðurinn Landsnet

vinnustaðurinn

21. janúar 2025

Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og umbóta settist við hljóðnemann og ræddi við Steinunni Þorsteinsdóttur um mikilvægi mannauðs í umhverfi eins og okkar sem er á fleygiferð.
Hún ræddi m.a. um áskoranir og tækifæri sem eru fram undan og hvernig Landsnet vinnur markvisst að umbótum fyrir betri framtíð.

Úr raforkuverkfræði yfir í upplýsingatækni

vinnustaðurinn

27. október 2024

Í þessum þætti hittum við Jóhannes Þorleiksson, nýjan framkvæmdastjóra, sem breytti um kúrs þegar hann réð sig nýverið til Landsnets.

Jóhannes deilir hér íáhugaverðum hugmyndum og markmiðum sem allar eiga að leiða að því að koma manni til tunglsins - kannski samt ekki alveg í orðsins fyllstu merkingu en krefjast hugrekkis, vilja og teymisvinnu.

Orkuskiptin og orkugeymslur

orkuskiptaskólinn

30. maí 2024

Gnýr Guðmundsson skólastjóri Orkuskiptaskólans og Magni Pálsson yfirkennari, okkar helstu sérfræðingar í orkuskiptunum á spjalli um þetta mikilvæga málefni.

Raforkuspáin og orkuskiptin

orkuskiptaskólinn

09. október 2023

Nýlega kom út ný raforkuspá Landsnets. Í henni kemur meðal annars fram að ekki sé útlit fyrir að fullum orkuskiptum verði náð árið 2040 eins og markmið stjórnvalda ganga út á, heldur 10 árum síðar. Hún Svala Birna Þórisdóttir vann að útgáfu Raforkuspárinnar og kom í heimsókn í Orkuskiptaskólann til þeirra Magna Þórs Pálssonar og Gnýs Guðmundssonar og sagði frá helstu niðurstöðum vinnunnar.

Með blik í auga náum við árangri

menningarvegferðin

28. júní 2023

Í Landsnetshlaðvarpinu að þessu sinni eru þær Margrét Eva Þórðardóttir og Maríanna Magnúsdóttir að ræða breyturnar og drifkraftana sem verða til þess að vinnustaðamenning innleiði stefnu fyrirtækisins. Það er ákveðin list að horfa á rekstur fyrirtækja heildrænt og sjá hvað mannlegi þátturinn vegur mikið. Það setja fókus á helgun starfsmanna skiptir þar höfuðmáli, jafnt starfsþróun og persónulega þróun. Lærdómsferlið er í raun mikilvægasta ferlið til að hlúa að á þeirri vegferð að innleiða stefnu á árangursríkan máta. Við erum mörg hver í þjóðfélaginu orðin þokkalega sjóuð í að læra af frávikum og ábendingum í ferlum okkar en erum við meðvituð um mannlegu mynstrin okkar og áhrif þeirra á teymið og vinnuna? Er það hluti af umbótastarfi að rýna okkar persónulegu mynstur og innleiða breytingar þar? Hvaða hugarfarsbreyting þarf að eiga sér stað til að ná árangri?

Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél ?

orkuskiptaskólinn

16. maí 2023

Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél? Þetta og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt í glænýjum þætti af Orkuskiptaskólanum þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson eru við stjórnvölinn.

Menningarvegferða leiðtogarnir Margrét Eva og Arna Ósk

menningarvegferðin

24. apríl 2023

Í þessu skemmtilega spjalli fara þær Margrét Eva Þórðardóttir okkar leiðsögumaður í menningarvegferðinni og Arna Ósk Arnarsdóttir hjá Isavia um víðan völl þegar kemur að menningu og þeirri vegferð sem fyrirtækin hafa verið á.

Margrét Eva og menningarvegferðin okkar

menningarvegferðin

01. júlí 2022

Hvernig endar sérfræðingur í Stjórnstöð sem verkefnastjóri menningarvegferðar? Þetta er spurning sem Margrét Eva Þórðardóttir hefur oft fengið en okkur í LandsnetsHlaðvarpinu fannst tilvalið að fá hana að hljóðnemanum í spjall um vegferðina og lífið hjá Landsneti og heyra um leið hvernig hún fékk menninguna í fangið.

Mannauðsmálin, menningarvegferðin og mánuðirnir hjá Landsneti

vinnustaðurinn

07. júní 2022

Jason Már Bergsteinsson sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Landsneti settist við hljóðnemann og ræddi lífið og tilveruna við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa - já og helstu verkefni síðustu mánaða en Jason hefur verið hjá Landsneti í hálft ár.

Jón Bergmundsson, ferlinn, flakkið og framtíðin

reynslusagan

31. maí 2022

Það eru tímamót hjá Jóni Bergmundssyni verkefnastjóra á framkvæmda- og rekstrarsviði sem kíkti í spjall og ræddi m.a um Tom Swift, Bosníu, Kosovo og lífið með Landsneti. Fyrir næstum 55 árum heillaðist hann af rafmagni sem hefur fylgt honum yfir heiðar og haf síðan þá - nú er komið að öðru og fram undan er tími til að njóta.