Við hjá Landsneti erum byrjuð að móta kerfisáætlunar 2017-2026 samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003. Samhliða er unnið umhverfismat á umhverfisáhrifum kerfisáætlunar skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana
Megintilgangur matsvinnu er að tryggja að tekið verði tillit til umhverfisjónarmiða við ákvarðanir um áætlunina, draga úr eða koma í veg fyrir neikvæð umhverfisáhrif og upplýsa um hugsanlegar afleiðingar kerfisáætlunar á umhverfið. Kerfisáætlun 2017-2026 mun byggja á kerfisáætlun 2016-2025. Í umhverfisskýrslu verður lögð áhersla á að fjalla um breytingar sem verða á milli áætlana. Grundvöllur matsvinnu verður samanburður ýmissa valkosta sem koma til í mótunarferli kerfisáætlunar.
Í matslýsingu er meðal annars gert grein
fyrir meginforsendum kerfisáætlunar, efnistökum umhverfisskýrslu, helstu
áhrifaþáttum áætlunarinnar, helstu umhverfisþáttum sem kunna að verða fyrir
áhrifum, valkostum til skoðunar, gögnum sem lögð verða til grundvallar ásamt matsspurningum
og viðmiðum við mat á vægi og umfangi umhverfisáhrifa.
Öll helstu gögn eru nú aðgengileg
Kynning og samráð vegna umhverfismatsvinnu kerfisáætlunar er í samræmi við lög nr. 106/2005 og mun Landsnet birta öll helstu gögn á heimasíðu fyrirtækisins. Hér má nálgast Matslýsingu fyrir Kerfisáætlun 2017-2026
Athugasemdafrestur:
Hægt er að senda athugasemdir og ábendingar um matslýsingu á netfangið landsnet@landsnet.is, merkt „matslýsing“. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 30. maí 2017.