Eitt af stærstu verkefnum okkar hjá Landsneti á síðasta ári var viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3. Strengurinn sem er að stærstum hluta sæstrengur bilaði í byrjun apríl 2017 í kjölfar byggingu nýs tengivirkis í Vestmannaeyjum og spennuhækkunar á afhendingu raforku í 66 kV.
Bilunin var staðsett u.þ.b. 3 km norðan við Eyjar á 50 m dýpi. Vinna við aðgerðaráætlun vegna viðgerðarinnar fór strax af stað. Ljóst var að um umfangsmikla viðgerð yrði að ræða og fengum við kapalskipið Isaac Newton, sérhæft viðgerðarskip, til aðstoðar við viðgerðina. Viðgerðin tók 14 daga og var fjarstýrður kafbátur notaður til að klippa strenginn í sundur.
Veikleiki í einangrun strengsins
Ekki var vitað hvað olli biluninni og litlir ytri áverkar sýnilegir, en sá hluti strengsins sem innihélt bilunina var sendur á rannsóknarstofu EA Technology á Englandi til frekari greiningar. Brunaáverkar voru á bútnum vegna skammhlaupsins sem varð í biluninni og því ekki hægt að segja nákvæmlega til um orsökina. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu hins vegar fram á ákveðið magn óæskilegra agna í einangruninni næst brunanum og eru mestar líkur taldar á því að bilunina megi rekja til þeirra.
Vorið 2013 var strengurinn framleiddur í verksmiðju ABB í Svíþjóð. Strengurinn var prófaður samkvæmt stífustu kröfum að framleiðslu lokinni í verksmiðju, m.a. með háspennuprófi.
Staðbundinn veikleiki
Rekstur á strengnum hefur gengið vel frá því að viðgerð lauk og ekki hafa komið upp nein önnur frávik. Ekkert bendir til annars en að um staðbundinn veikleika hafi verið að ræða og að strengurinn sé eftir viðgerð í góðu ásigkomulagi.
Um var að ræða dýrustu viðgerð í sögu Landsnets en viðgerðin kostaði um 630 milljónir króna.