ÚTBOÐ ISA-01 Tengivirki á Ísafirði


28.05.2013

Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, byggingu og fullnaðarfrágang húss og lóðar fyrir nýtt tengivirki á Ísafirði í samræmi við útboðsgögn ISA-01. Verkið felur í sér jarðvinnu og byggingu staðsteypts húss yfir rofabúnað, spenna og stjórnbúnað á einni hæð. Húsið verður í tveimur hlutum, rofasalur og spennahólf sem verða samtals um 300 m² að grunnfleti og stjórnhluti sem verður um 70 m² að grunnfleti.

Helstu verkliðir eru: 

• Grafa fyrir og fylla að húsi, lögnum og plönum. 
• Leggja jarðskautskerfi í steypu og jörð.  
• Steypa upp rofasal og spennahólf. 
• Steypa upp stjórnhús. 
• Leggja lagnakerfi. 
• Fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss. 
• Frágangur lóðar. 


Húsið skal vera tilbúið til uppsetningar á háspennu- og stjórnbúnaði 15. febrúar 2014. Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2014. 


Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með miðvikudeginum 22. maí 2013. 


Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík fyrir kl. 10:00 föstudaginn 7. júní 2013 þar sem þau verða opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. 

Aftur í allar fréttir