Útboð BOL- 32 Díeselrafstöðvar fyrir nýtt tengivirki í Bolungarvík


30.05.2013

Landsnet óskar eftir tilboðum í afhendingu og uppsetningu á 6 stk. díselrafstöðvum ásamt fylgibúnaði fyrir nýtt tengivirki í Bolungarvík í samræmi við útboðsgögn BOL-32. Verkið felur í sér framleiðslu, afhendingu, uppsetningu ásamt prófunum á 6 díeselrafstöðvum og fylgibúnaði ásamt því að vinna það annað sem tiltekið er og lýst í útboðsgögnum BOL-32

Helstu magntölur eru:
Fjöldi véla 6 einingar
Stærð  1800 kW, 50 Hz,  0,8 pf
Spenna 0,4/11 kV eða 11/11 kV


Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2014

Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með mánudeginum 3. Júní 2013.

Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júní 2013 þar sem þau verða opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Aftur í allar fréttir