Úrbætur á hljóðvist við tengivirki í Hamranesi


25.02.2016

Framkvæmd

Framkvæmdir til að bæta hljóðvist við tengivirki Landsnets í Hamranesi eru á lokstigi. Búið er að byggja hljóðdempandi vegg framan við spennana við hlið tengivirkisins til að draga úr nið sem berst frá þeim og einnig hefur hljóðmönin við virkið verið hækkuð.

Það er von Landsnets að þessar aðgerðir dugi vel og bæti hljóðvistina á svæðinu til muna en ráðist var í þær í samráði við íbúasamtök á Völlunum og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði, í kjölfar samkomulags sumarið 2015 milli þessara aðila um að fjarlægja Hamraneslínur 1 og 2 eigi síðar en í árslok 2018.

Byggð í Hafnafirði hefur þróast að línunum á undanförnum árum og voru íbúar á svæðinu ekki sáttir við sambýlið við þær auk þess sem þeir kvörtuðu einnig undan þungum nið frá spennunum við hlið tengivirkisins í Hamranesi.

Eftir ýtarlegar mælingar og greiningu á vandanum var ákveðið að hækka hljóðmönina við tengivirkið um tvo og hálfan metra og byggja hljóðeinangrandi vegg framan við spennana. Ístak tók að sér að reisa vegginn sem er úr forsteyptum einingum. Hann er með steinull á þeirri hlið sem snýr að spennunum sem dempar bæði hávaða og dregur úr endurkasti. Þá er einnig búið að hækka hljóðmönina í kringum tengivirkið en lokafrágangur bíður vors þegar hægt verður að ganga frá gróðri.
Aftur í allar fréttir