Umfangmestu jarðstrengjakaup Landsnets


05.11.2014

Framkvæmd

Landsnet hefur samið við sænska kapalframleiðandann NKT Cables AB um kaup á þremur jarðstrengjum fyrir 66 kílóvolta spennu, samanlagt um 45 km að lengd, vegna fyrirhugaðra verkefna á næsta ári. Samkomulagið, sem hljóðar upp á um tvær og hálfa milljón evra var undirritað af forstjóra Landsnets og fulltrúum NKT í höfuðstöðvum Landsnets í dag.

„Þetta eru umfangsmestu jarðstrengjainnkaup sem Landsnet hefur ráðist í frá stofnun fyrirtækisins en kostnaðarlega séð er það orðið sambærilegt í dag að leggja raforkulínur á 66 kV spennu í jörð og byggja loftlínur. Það er enda stefna Landsnets að öðru jöfnu að velja jarðstrengjalausnir á umræddri spennu,“ segir Þórður Guðmundsson forstjóri.

Jarðstrengirnir þrír verða notaðir til að endurbæta og styrkja raforkuflutningskerfið á Suður- og Vesturlandi. Ráðist verður í verkefnin á næsta ári en þau eru:

  • Selfosslína 3, ný 28 km löng jarðstrengslögn milli Selfoss og Þorlákshafnar, sem mun auka afhendingaröryggi raforku í Hveragerði, Þorlákshöfn og á Selfossi.
  • Hellulína 2, ný 13 km löng jarðstrengstenging milli Hellu og Hvolsvallar, sem leysa mun af hólmi núverandi loftlína á þessari leið.
  • Tenging nýs tengivirkis á Akranesi þar sem leggja þarf allt að fjögurra km jarðstreng.

Samkomulagið hljóðar upp á 2,35 milljónir evra og var það gert að undangengnu útboðsferli þar sem NKT átti lægsta tilboðið. Það felur í sér framleiðslu og flutning jarðstrengjanna til Íslands ásamt eftirliti með lagningu þeirra, tengingu og prófunum. Strengirnir verða framleiddir í verksmiðju fyrirtækisins í Falun í Svíþjóð en Orkuvirki verður undirverktaki sænska fyrirtækisins á Íslandi.

Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets og fulltrúar NKT, Peter Marcusson, sölustjóri á Norðurlöndum, og Magnus Björklund, markaðsstjóri á Norðurlöndum, undirrita samning um kaup á jarðstrengjum. Ljósmynd: Hreinn Magnússon/Landsnet.

Aftur í allar fréttir