Suðurnesjalína 2 - tillaga að matsáætlun í kynningu


24.04.2018

Framkvæmd

Frestur til athugasemda er til 11. maí 2018.

Lögð hefur verið fram tillaga að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Suðurnesjalínu 2, milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavíkurbæ.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 11. maí 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um verkefnið.

 

Aftur í allar fréttir