Við hjá Landsneti höfum lengi talað fyrir uppbyggingu og styrkingu flutningskerfisins og fögnum allri umræðu um bætt afhendingaröryggi og uppbyggingu á kerfinu.
Í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Metsco vann fyrir Landvernd um raforkukerfið á Vestfjörðum er fjallað um áreiðanleika flutningskerfisins á svæðinu.
Hjá Landsneti hefur verið unnið að styrkingu á flutningskerfinu á Vestfjörðum undanfarin ár, til dæmis með byggingu varaaflsstöðvar í Bolungarvík og lagningu jarðstrengs í Bolungarvíkurgöng. Að auki er unnið að undirbúningi hringtengingar á milli norður – og suðurfjarðanna, meðal annars með sæstreng yfir Arnarfjörð og lagningu á jarðstreng í gegnum Dýrafjarðargöng. Í hringtengingunni leggjum við áherslu á að nota jarðstrengi eins mikið og kostur er vegna aðstæðna.
Þegar metnar eru tengileiðir milli staða á Vestfjörðum er kostnaður vegna jarðstrengja sambærilegur við loftlínur og því mikilvægt að horft sé til kosta jarðstrengja. Tæknilegar hindranir koma þó í veg fyrir að hægt sé að leggja allar línur í jörð. Ólíkur styrkur kerfisins milli landsvæða er meginástæða þess að svigrúm til jarðstrengslagna er mismunandi. Þar sem kerfið er sterkt er meira rými til þess heldur en þar sem styrkurinn er lítill.
Á Vestfjörðum er kerfið hvað veikast á landinu. Vesturlínan er um 160 km, frá Hrútatungu að Mjólká og áætlað er að hægt sé að leggja um 15 – 20 km af henni í jörðu. Fyrir nokkrum árum var lagður 12 km langur jarðstrengur í Bolungarvíkurgöng. Við rekstur á jarðstrengnum hefur reynt á þolmörk kerfisins og því hefur Landsnet góðar upplýsingar um styrk kerfisins á svæðinu.
Skýrslan sem Metsco gerði fyrir Landvernd fjallar ekkert um þessa takmörkun á lengd jarðstrengja heldur gerir ráð fyrir að hægt sé að leggja jarðstrengi á alla Vestfirði sem er óraunhæft. Staðreyndin er að einungis er hægt að leggja hluta kerfisins í jörð og því fullyrðingar um að hægt sé að tífalda afhendingaröryggi á Vestfjörðum með jarðstrengjum villandi.
Öll umræða um styrkingu á kerfinu er af hinu góða en mikilvægt er að hún byggist á réttum forsendum og hvetjum við hjá Landsneti stjórnvöld til að gera sjálfstæða úttekt á niðurstöðum skýrslunnar.