Raforkuverð vegna flutningstapa verður 4.218 kr/MWst fyrir fjórða ársfjórðung 2020.
Nýverið voru opnuð tilboð í raforku sem áætlað er að muni tapast á þriðja ársfjórðungi, en Landsnet býður fjórum sinnum á ári út alla þá orku sem tapast í flutningskerfinu.Flutningstöp er sú raforka sem tapast vegna viðnáms í raflínum og spennum í raforkuflutningskerfinu. Um 2% þeirrar raforku sem mötuð er inn á kerfið tapast á leið til notenda. Sú raforka samsvarar um 400 GWst/ári sem jafngildir framleiðslu Kröflustöðvar eða raforkunotkun um 1.500 rafmagnsbíla á einu ári. Samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003 ber Landsneti að útvega rafmagn í stað þess sem tapast í kerfinu.
Boðnar voru út tvenns konar vörur. Annars vegar er um að ræða grunntöp með fullum nýtingartíma og hins vegar eru það viðbótartöp með 41% nýtingartíma og sveigjanleika sem nemur magn aukningu
eða – minnkun um +/- 30%. Alls voru um 90 GWst af raforku boðin út en það er sú raforka sem áætlað er að tapist í flutningskerfinu á næsta ársfjórðungi. Á sama tímabili 2019 voru boðin út 93 GWst.
Meðalverð þessa útboðs lækkar um 8,5% miðað við sama tíma í fyrra en hækkar um 11,4% frá síðasta ársfjórðungi. Raforkuverð vegna flutningstapa á fjórða ársfjórðungi 2020 verður 4.218 kr/MWst.
Gjald vegna flutningstapa fyrir sama tímabil verður 85,57 kr. á MWst og er 12% lægra en fyrir sama tímabil í fyrra en hækkar um 6,4% milli ársfjórðunga.
Að þessu sinni var samið við fjóra raforkusala, HS Orku, Íslenska orkumiðlun, Landsvirkjun og Orku náttúrunnar á grundvelli þeirra tilboða sem bárust og er heildarkostnaður um 381 millj. kr. Til að geta tekið þátt í rafrænum útboðum á raforku vegna flutningstapa þurfa raforkusölufyrirtæki að gera rammasamning við Landsnet. Rammasamningur skyldar þó ekki fyrirtæki til þess að taka þátt í útboðunum, enda er það val hvers sölufyrirtækis hverju sinni. Í dag eru 5 raforkusalar með rammasamning við Landsnet: HS Orka, Íslensk orkumiðlun, Landsvirkjun, Orka náttúrunnar og Orkusalan.
Öll tilboð sem bárust vegna útboðsins eru birt hér á vefnum og þar er hægt að skoða nánar dreifingu tilboða og bera saman við tilboð fyrri útboða.