Raforkunotkun ársins 2016


13.03.2017

Framkvæmd

Í frétt frá Raforkuhóp Orkuspánefndar kemur fram að árið 2016 nam raforkuvinnsla á landinu samtals 18.547 GWh og minnkaði um 1,3% frá fyrra ári. Notkun fædd frá flutningskerfinu (stórnotkun) nam 14.287 GWh á árinu 2016 og minnkaði um 0,5% frá fyrra ári.

Almenn notkun (forgangs- og skerðanleg orka) minnkaði um 4,2% og nam 3.901 GWh. Töp við flutning orkunnar frá virkjunum til almenningsveitna og stórnotenda voru 358 GWh og minnkuðu um 3,1%.

Minnkun almennrar raforkunotkunar á síðasta ári stafar að mestu af eftirfarandi þáttum:

- Veðurfar var gott árið 2016 og lofthiti í Reykjavík var að meðaltali um 1,5°C hærri það ár en árið á undan (tölur leiðréttar út frá lofthita eru sýndar innan sviga þar sem slíkt á við).
- Loðnuafli var mun minni árið 2016 (um 100 þús. tonn) en árið 2015 (um 350 þús. tonn) en vinnsla loðnu kallar á verulega raforkunotkun og er hún að stórum hluta afhent sem skerðanleg orka.
- Afhending raforku til gagnavers, sem upphaflega fékk orku frá dreifikerfi raforku, fluttist yfir til flutningskerfisins um mitt ár 2016.

Nánari upplýsingar má finna hér – fréttatilkynning frá 10.mars 2017
Aftur í allar fréttir