Nokkrar truflanir urðu í morgun í tengivirkinu á Rangárvöllum við Akureyri sem rekja má til vinnu sem þar fór fram við spenni. Við innsetningu spennisins urðu mistök sem mynduðu ljósboga í tengivirkinu.
Starfsmaður Landsnets sem var við vinnu nálægt búnaðinum var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. Meiðsli hans virðast ekki alvarleg en þó mun hann vera á sjúkrahúsinu yfir nótt undir eftirliti.Minniháttar skemmdir urðu á búnaði. Rafmagnsleysið varði frá um klukkan ellefu þar til tókst að koma rafmagni á til allra notenda milli korter yfir eitt og hálf tvö.
Rafmagnsleysið var víðtækt, en Akureyri og nágrannabæjarfélög og -sveitir voru án rafmagns þennan tíma.