Um klukkan þrjú í nótt varð truflun í flutningskerfinu á Reykjanesi sem varð þess valdandi að rafmagnslaust varð í Grindavík í nokkra klukkutíma.
Ástæða bilunarinnar var bilaður eldingarvari á Fitjalínu 1 sem liggur á milli Fitja og Rauðamels. Viðgerð í Fitjum hófst strax í nótt og var henni lokið rétt fyrir klukkan átta í morgun.
Aukið afhendingaröryggi
Undanfarin ár hefur Landsnet verið að vinna að lagningu Suðurnesjalínu 2, í þeim tilgangi að auka afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum.
Eins og staðan er í dag er einungis um að ræða eina línu frá Hafnarfirði til Suðurnesja og því ekki hægt að tryggja afhendingaröryggi á svæðinu þegar um truflun eða bilun eins og í nótt er um að ræða.
Drög að matsáætlun vegna Suðurnesjalínu 2 eru búin að vera í kynningu og athugasemdafresti er nú nýlokið. Nú er verið að vinna úr ábendingum sem bárust.
Vinna að undirbúningi Suðurnesjalínu 2 er unnin í samráði og samvinnu við samfélagið. Í því markmiði höfum við sett af stað verkefnaráð, samráðsvettvang þar sem helstu hagsmunaaðilar koma saman með reglulegu millibili.
Nánari upplýsingar um Suðurnesjalínu 2 verkefnið er að finna hér á www.landsnet.is