Við hjá Landsneti höfum í dag verið að meta viðbrögð út frá sviðsmyndum og áhættumati sem nú er unnið eftir. Farið hefur verið í gegnum mögulegar áhættur hverrar sviðmyndar og viðbrögð við þeim metin. Sviðsmyndirnar tengjast bæði eldgosi og stórum skjálftum og þær eru í stöðugri uppfærslu og áhættumati eftir upplýsingum frá Almannavörnum, Veðurstofunni og okkar sérfræðingum.
Niðurstöður áhættumatsins sem nú er unnið eftir er að ólíklegt sé að eldgos myndi valda truflunum á raforkuflutningi á Reykjanesi. Ef útlit er fyrir að hraun muni ógna línunni munum við hafa einhvern tíma til að grípa til aðgerða og verja línuna með gerð varnargarða eða kælingu með öflugum dælum.Við höfum líka verið að vinna með sviðsmynd sem snýr að því að reka Reykjanesið sem eyju beint frá þeim virkjunum sem eru staðsettar á svæðinu ef Suðurnesjalína færi út. Það er ekki hægt í dag, en verið er að vinna að úrbótum með framleiðanda búnaðar á virkjanasvæðinu. Einnig er vinna hafin við aðgerðaáætlun vegna flutnings á varaflsvélum inn á svæðið.
Við erum á vaktinni og munum fylgjast vel með í nánu samstarfi við Almannavarnir og Veðurstofuna.
Allar tilkynningar um truflanir í flutningskerfinu birtast á www.landsnet.is, á samfélagsmiðlum og í Landsnetsappinu