Ný stjórn Landsnets - Haraldur Flosi Tryggvason Klein kjörinn stjórnarformaður


31.03.2025

Framkvæmd

Á aðalfundi Landsnets sem haldinn var föstudaginn 28. mars var ný stjórn fyrirtækisins kjörin en hana skipa þau Haraldur Flosi Tryggvason Klein formaður, Harpa Þuríður Böðvarsdóttir, Kristján Arinbjarnar, Stefán Pétursson og Ruth Elfarsdóttir. Varamenn voru kosin þau Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir og  Einar Þorsteinsson.

„Ný stjórn Landsnets tekur við á tímum orkuskipta og áframhaldandi uppbyggingar nýrrar kynslóðar byggðalínu sem eru meðal brýnustu samfélagsverkefna þjóðarinnar og því spennandi áskorun fyrir nýtt stjórnarfólk að takast á við „ segir Haraldur Flosi stjórnarformaður Landsnets. 

Nýtt verkalag við val í stjórnina

Stjórn Landsnet var valin á grunni nýs verklags um val á einstaklingum til stjórnarsetu í fyrirtækjum sem eiga að tryggja að tilnefndir stjórnarmenn veljist á grundvelli hæfni, menntunar eða reynslu. Þar er líka kveðið á um að stjórnarmenn skulu vera óháðir fyrirtækinu og stjórnendum þess, séu hvorki starfsmenn fyrirtækisins né kjörnir fulltrúar á Alþingi eða í sveitarstjórnum.

Þau Sigrún Björk Jakobsdóttir, Álfheiður Eymarsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Elín Björk Jónasdóttir og Friðrik Fraser gengu úr stjórninni og þökkum við þeim fyrir farsæl störf í þágu í Landsnets.

Aftur í allar fréttir