Breytingin felur í sér 26% hækkun á gjaldskrá vegna flutningstapa og 12% hækkun á gjaldskrá vegna kerfisþjónustu.
Landsnet semur um kaup á raforku vegna flutningstapa á þriggja mánaða fresti og ákvarðast gjaldið af kostnaði við útboð Landsnets. Kostnaður fyrir þriðja ársfjórðung 2018 liggur fyrir og hefur hækkað um 27,9% frá sama ársfjórðungi í fyrra sem skilar sér í 26% hækkun á gjaldskrá vegna flutningstapa.
Landsnet semur um kaup á reglunaraflstryggingu vegna kerfisþjónustu. Kostnaður vegna nýjasta útboðs hækkaði um 6% frá sama tíma á fyrra ári. Með þessari hækkun ásamt annari hækkunarþörf er ljóst að hækka þar gjaldskrá kerfisþjónustu um 12%.
Áhrif hækkunarinnar á rafmagnsreiknings hins almenna notanda vegna þessara breytinga eru litlar sem engar eða um 0,2%.
Frekari upplýsingar um gjaldskrá Landsnets má finna hér.
Ekki verða gerðar aðrar breytingar á gjaldskrá Landsnets.