Meðalverð orku vegna flutningstapa lækkar


27.08.2019

Framkvæmd

Nýverið voru opnuð tilboð í raforku sem áætlað er að muni tapast á 4. ársfjórðungi þessa árs en fyrirtækið býður fjórum sinnum á ári út alla þá orku sem tapast í flutningskerfinu.

„Þátttaka raforkusala í útboðinu var góð, alls bárust tilboð frá fimm raforkusölum og buðu fjórir þeirra í stóran eða allan hluta raforkunnar. Að þessu sinni gerum við samninga við fjögur sölufyrirtæki. Sögulega hefur raforkuverð vegna flutningstapa verið með því hæsta á síðustu mánuðum hvers árs en á þeim árstíma er raforkunotkun með mesta móti og eftirspurnin því mikil eftir rafmagni í samfélaginu öllu. Á síðustu árum hefur meðalverð síðasta ársfjórðungs hins vegar lækkað jafnt og þétt og í kjölfar þessa útboðs lækkar gjaldskrá vegna flutningstapa á fjórða ársfjórðungi 2019 um 17,9%, miðað við sama tímabil í fyrra“ segir Þorvaldur Jacobsen, framkvæmdastjóri Kerfisstjórnunarsviðs.


Boðnar voru út tvenns konar vörur, annars vegar grunntöp með fullum nýtingartíma og hins vegar viðbótartöp með 44% nýtingartíma og sveigjanleika sem nemur magn aukningu eða –minnkun um +/- 30%. Alls voru 93 GWh af raforku boðin út en það er sú raforka sem áætlað er að tapist í flutningskerfinu á síðasta ársfjórðungi 2019. Niðurstaða útboðsins er sú að meðalverð orkunnar lækkar um 5,5% og verður 4,60 kr/kWh á fjórða ársfjórðungi.

Samningar gerðir við fjóra raforkusala

Að þessu sinni var samið við fjóra raforkusala, HS Orku, Íslenska orkumiðlun, Landsvirkjun og Orku náttúrunnar á grundvelli þeirra tilboða sem bárust og er heildarkostnaður þeirra 427 millj. kr. Til að geta tekið þátt í rafrænum útboðum á raforku vegna flutningstapa þurfa raforkusölufyrirtæki að gera rammasamning við Landsnet. Rammasamningur skyldar þó ekki fyrirtæki til þess að taka þátt í útboðunum enda er það val hvers sölufyrirtækis hverju sinni. Í dag eru fimm raforkusalar með rammasamning við Landsnet: HS Orka, Íslensk orkumiðlun, Landsvirkjun, Orka náttúrunnar og Orkusalan.

Öll tilboð birt á heimasíðu Landsnets


Öll tilboð sem bárust vegna útboðsins eru birt hér á www.landsnet.is og er hægt að skoða nánar dreifingu tilboða og bera saman við tilboð fyrri útboða.

Samanburður við Nordpool


Nordpool er stærsti raforkumarkaður í Evrópu og Landsnet ber saman meðal raforkuverð vegna flutningstapa við verð á Nordpool frá byrjun árs 2015.
Flutningstöp er sú raforka sem tapast vegna viðnáms í raflínum og spennum í raforkuflutningskerfinu. Ríflega 2% þeirrar raforku sem mötuð er inn á kerfið tapast á leið til notenda. Sú raforka samsvarar um 400 GWh/ári sem jafngildir framleiðslu Kröflustöðvar eða raforkunotkun um 1.500 rafmagnsbíla á einu ári. 

 

 

 

Aftur í allar fréttir