Landsnet hefur samið við Íslenska aðalverktaka um undirbúningsvinnu vegna byggingar Suðurnesjalínu, 220 kílóvolta (kV) háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartengis.
Verkið felst í stórum dráttum í slóðagerð, jarðvinnu og byggingu undirstaðna en línuleiðin er rúmir 32 kílómetrar og verða möstrin alls 100 talsins. Undirbúningsvinnan hefst um leið og aðstæður leyfa og skal verkinu að fullu lokið fyrir septemberlok 2016. Áformað er að reisa línuna sumarið 2017 og tengingu ljúki á því ári.Undirbúningsvinna vegna Suðurnesjalínu 2 var boðin út í september 2015. Sjö buðu í verkið og átti ÍAV lægsta tilboðið að upphæð tæplega 320 milljónir króna en kostnaðaráætlun Landsnets hljóðaði upp á tæplega 390 milljónir.
Útboð á eftirliti með undirbúningsvinnunni hefur einnig farið fram. Verkfræðistofan Hnit var með hagstæðasta tilboðið og hefur verið samið við hana um eftirlit með framkvæmdum við Suðurnesjalínu 2.
Brýnt að styrkja flutningskerfi raforku á Reykjanesi
Suðurnesjalína 2 er hluti af verkefninu Suðvesturlínur. Umhverfismat vegna framkvæmdanna var samþykkt með skilyrðum árið 2009 og í ársbyrjun 2011 var ákveðið að byrja á styrkingu flutningskerfisins á Suðurnesjum. Suðurnesjalína 1, sem nú þjónar svæðinu og rekin er á 132 kV spennu, er fulllestuð og jafnframt er öryggi kerfisins ófullnægjandi þar sem aðeins er þessi eina tenging frá Reykjanesskaganum við meginflutningskerfi Landsnets.
Framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 liggur fyrir frá sveitarfélögunum Grindavík, Hafnafjarðarbæ, Reykjanesbæ og Vogum og leyfi Orkustofnunar fyrir byggingu og rekstri línunnar. Í ársbyrjun 2014 heimilaði iðnaðar- og viðskiptaráðherra Landsneti að taka tiltekin landsréttindi á Reykjanesskaga eignarnámi, þar sem samningar höfðu ekki náðst við alla landeigendur, en kröfu um ógildingu eignarnámsheimildanna var hafnað af dómstólum.
Nýja línan mun að miklu leyti fylgja núverandi Suðurnesjalínu 1 frá Hafnarfirði að Rauðamel, nema austast á svæðinu þar sem gert er ráð fyrir að hún liggi í nýju línubelti töluvert fjær núverandi byggð í Hafnarfirði. Landraski verður haldið í lágmarki og jafnframt er orðið við tilmælum sveitarfélaga á svæðinu og helstu fagstofnana um að reisa nýju línuna í núverandi mannvirkjabelti, þar sem fyrir eru Suðurnesjalína 1 og Reykjanesbraut.
Mynd:
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, handsala samkomulag vegna undirbúningsvinnu Suðurnesjalínu 2.