Landsnet vinnur að undirbúningi við mótun kerfisáætlunar 2016-2025 samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003.
Samhliða vinnur Landsnet umhverfismat á umhverfisáhrifum kerfisáætlunar skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Megintilgangur matsvinnu er að tryggja að tekið verði tillit til umhverfisjónarmiða við ákvarðanir um áætlunina, draga úr eða koma í veg fyrir neikvæð umhverfisáhrif og upplýsa um hugsanlegar afleiðingar kerfisáætlunar á umhverfið. Kerfisáætlun 2016-2025 mun byggja á samþykktri kerfisáætlun 2015-2024. Í umhverfisskýrslu verður lögð áhersla á að fjalla um breytingar sem verða á milli áætlana. Grundvöllur matsvinnu verður samanburður ýmissa valkosta sem koma til í mótunarferli kerfisáætlunar.
Öll helstu gögn á heimasíðu Landsnets
Kynning og samráð vegna umhverfismatsvinnu kerfisáætlunar verður í samræmi við lög nr. 106/2005 og mun Landsnet birta öll helstu gögn á heimasíðu fyrirtækisins. Hér má nálgast Matslýsingu fyrir Kerfisáætlun 2016-2025.
Mynd : Tímaáætlun kerfisáætlunar og umhverfismats
Athugasemdafrestur
Hægt er að senda athugasemdir og ábendingar um matslýsingu á netfangið landsnet@landsnet.is, merkt „matslýsing“. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 15. júní 2016.