Jarðstrengir á Austurlandi teknir í notkun


13.12.2016

Framkvæmd

Nú er lokið vinnu við styrkingu á jarðstrengjum í  Eskifjarðarlínu 1, milli Eskifjarðar og Eyvindarár við Egilsstaði, Stuðlalínu 2, milli Stuðla í Reyðarfirði og Eskifjarðar og Neskaupstaðarlínu 1, milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar. Jarðstengirnir liggja á milli loftlínu og tengivirkis í Eskifirði og Norðfirði.

Markmið verkefnisins var að auka orkuflutningsgetuna þannig að jarðstrengirnir við tengivirkið á Eskifirði og Norðfirði verði ekki takmarkandi heldur í samræmi við flutningsgetu loftlínanna sem þeir tengjast. Nýju jarðstrengirnir eru gerðir fyrir 132 kV spennu þó þeir séu nú reknir á 66 kV spennu. Með þessu er búið að undirbúa mögulega spennuhækkun á Eskifjarðarlínu 1 og Stuðlalínu 2.  

3,5 km af jarðstrengjum

Undirbúningur á verkefninu hófst 2015 og var byrjað að skipta út jarðstrengjum við tengivirkið á Eskifirði 2016. Verkinu lauk í síðustu viku þegar Neskaupstaðarlína 1 var tekin í rekstur, eftir lagningu strengja í Neskaupstað.

Lokafrágangur á flugvellinum í Norðfirði dróst vegna veðurs en í síðustu viku náðist að ljúka öllum frágangi í og við flugvöllinn enda veðurskilyrði óvenju góð miðað við árstíma.

Úttekt á yfirborðsfrágangi á strengleiðum fer fram næsta vor og þá verður unnið að úrbótum ef þörf þykir.

„ Nýju jarðstrengirnir koma í staðinn fyrir eldri strengi sem voru of afkastalitlir og sköpuðu því flöskuháls í kerfinu á nokkrum stöðum.  Þessi framkvæmd við endurnýjun jarðstrengjanna skiptir miklu máli fyrir raforkuöryggi á svæðinu“ segir Nils Gústavsson, framkvæmdastjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs.

Aftur í allar fréttir