Haustfundi frestað


29.09.2026

Framkvæmd

Ákveðið hefur verið að fresta opnum haustfundi sem átti að halda fimmtudaginn 1. október klukkan 10:30 í Vör.

Fram hefur komið að starfsmaður Landsnets var fluttur á spítala eftir alvarlegt slys í tengivirki í Borgarfirði í gær.

Hjá Landsneti starfar samheldinn hópur fólks sem lætur sig hvert annað varða. Hugur starfsfólks er nú hjá samstarfsfélaga okkar sem slasaðist í gær. Í því ljósi hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta haustfundinum og boða til hans að nýju síðar.

Aftur í allar fréttir