Gagnsæi og traust á raforkumarkaði – um nauðsyn þess að afgreiða frumvarp um hátternisreglur í raforkuviðskiptum


02.06.2025

Framkvæmd

Á Alþingi liggur nú fyrir frumvarp um breytingu á raforkulögum, sem fjallar um tilteknar hátternisreglum í raforkuviðskiptum. Verði frumvarpið að lögum mun það marka tímamót í þróun raforkumarkaðar á Íslandi þar sem innleiddar yrðu reglur um bann við markaðsmisnotkun og innherjasvikum, skyldu til birtingar innherjaupplýsinga og kröfur um skráningu markaðsaðila. Reglurnar eru að mörgu leyti sambærilegar við þær reglur sem þegar gilda á fjármálamörkuðum.

Tilgangur lagabreytinga er að tryggja viðunandi leikreglur á markaði. Með aukinni markaðsvæðingu, m.a. með tilkomu viðskiptavettvanga á borð við Elmu og Vonarskarðs, hefur orðið til nýtt landslag sem krefst þess að settar séu skýrari leikreglur. Þá er í frumvarpinu einnig gert ráð fyrir því að Raforkueftirlitið fari með eftirlit með nýjum reglum. 

Skýrar leikreglur eru nauðsynlegar

Fyrir um fimmtán árum innleiddi Evrópusambandið sambærilegar reglur á sínum raforkumarkaði með svokallaðri REMIT tilskipun, sem enn er til skoðunar hjá EES/EFTA ríkjunum.  Þó að skipulagður raforkumarkaður  sé tiltölulega nýr af nálinni hér á landi, er ekki hægt að líta fram hjá því að á Íslandi hefur verið raforkumarkaður í einhverri mynd í tuttugu ár.  Þannig er ekki eingöngu tímabært að innleiða slíkar reglur hér á landi heldur er það nauðsynlegt til að tryggja traust markaðarins. Enginn vafi á því að samræming íslenskra laga við evrópskar kröfur styður  við samkeppnishæfni Íslands.

Fyrir almenna raforkunotendur skipta slíkar reglur höfuð máli. Án hátternisreglna og reglna um upplýsingagjöf, geta þátttakendur á markaði sem búa yfir betri upplýsingum en aðrir aðilar,  hagnast á viðskiptum á kostnað annarra. Með skýrari reglum um upplýsingaskyldu og bann við innherjasvikum og  markaðsmisnotkun er stuðlað að því raunveruleg staða endurspeglist í framboði og eftirspurn og verði raforkunnar. Jafn aðgangur að upplýsingum eykur einnig traust markaðsaðila og almennings á raforkumarkaðnum og dregur úr líkum á misnotkun.

Fyrir starfsfólk orkufyrirtækja fela slíkar reglur í sér nýjar kröfur um háttsemi, verklag, skráningu upplýsinga og upplýsingagjöf, sem stuðlar að faglegri og ábyrgari starfsemi. Nauðsynlegt er að reglurnar séu skýrar og fyrirsjáanlegar og að gerðar séu leiðbeiningar en þannig veita reglurnar þeim sem eftir þeim starfa aukið öryggi og vissu við sín störf. Þannig minnkar áhættan á því gerð verði mistök, sem geta verið dýrkeypt fyrir fyrirtækin og starfsfólk persónulega.

Markaðsreglur eru til bóta fyrir okkur öll

Með skýrari reglum og eftirliti verður auðveldara að tryggja jafnræði milli aðila á markaði og koma í veg fyrir að smærri fyrirtæki verði undir í samkeppni. Hátternisreglur á raforkumarkaði eru því lykilverkfæri til að efla heilbrigðan og samkeppnishæfan raforkumarkað.

Með samþykkt frumvarpsins yrði lagður grunnur að skýrari leikreglum sem verja hagsmuni almennings, stuðlað að virkum markaði og um leið yrði tekið mikil vægt skref í þeim tilgangi að efla traust um íslenska raforkukerfið og raforkumarkaðinn og er mikilvægur grunnur í að bæta samkeppnishæfni Íslands.

Þessi grein birtist fyrst á vísir.is mánudaginn 2.júní, 2025.

Aftur í allar fréttir