Á fundi með hagsmunaaðilum á Selfossi í dag kynntum við hjá Landsneti nýja kerfisáætlun og fyrirhugaðar framkvæmdir á Suðurlandi sem eru hluti af Kerfisáætlun 2025–2034. Þar kom fram að umfangsmikil uppbygging er fyrirhuguð á næstu árum sem miðar að því að styðja við aukna orkuöflun, styrkja flutningskerfið og bregðast við ört vaxandi þörfum iðnaðar á svæðinu.
Framkvæmdir þegar hafnar og fleiri á döfinni
Nýjar virkjanir verða tengdar við flutningskerfið á svæðinu, þar á meðal fyrsti vindlundur landsins í Vaðöldu sem tengist í nýtt tengivirki á Ferjufitjum.
Á fundinum var líka farið yfir fjölbreytt verkefni sem þegar eru í framkvæmd eða undirbúningi m.a. Rimakotslína 2, Vestmannaeyjalínur 4 og 5, og tengingu viðskiptavina í Þorlákshöfn. Þá eru Þorlákshafnarlína 2 og Selfosslína 1 á framkvæmdaáætlun, ásamt endurnýjun við Írafoss og fleiri lykilþáttum kerfisins.
Undirbúningur spennuhækkunar
Eitt helsta markmið verkefnanna er að undirbúa spennuhækkun á svæðisbundna kerfinu, sem mun tvöfalda flutningsgetu þess. Með því skapast öflugri tengipunktar til að nýta þá raforku sem framleidd er á Suðurlandi og stuðla að öflugum og öruggum afhendingarmöguleikum.
Nánari upplýsingar á www.landsnet.is/kerfisaaetlun.
Takk öll sem komuð á fundinn með okkur í dag og lögðuð þannig grunninn að framtíðinni með okkur.