Endurbætur á Tálknafjarðarlínu


04.11.2013

Framkvæmd

Starfsmenn Landsnets, Orkubús Vestfjarða og verktakar hafa undanfarið unnið að endurbótum á Tálknafjarðarlínu 1, milli Mjólkárvirkjunar og Tálknafjarðar, til að bæta rekstraröryggi línunnar en nokkuð hefur verið um truflanir á henni í verstu veðrum.

Vinnan fólst einkum í því að auka einangrun leiðara frá burðarvirki og gera ráðstafanir sem draga eiga úr samslætti leiðara sem nokkuð hefur borið á í óveðrum með tilheyrandi truflunum og útslætti.

 
Frekari viðhaldsaðgerðir og breytingar eru fyrirhugaðar á Tálknafjarðarlínu 1 á næsta ári. Hún er rekin á 66 kV spennu og er eina raforkutenging Landsnets til sunnanverðra Vestfjarða, frá Mjólkárvirkjun við Borgarfjörð, inn af Arnarfirði, að aðveitustöð á Keldeyri við Tálknafjörð.

Aftur í allar fréttir