Ekki þörf á nýju umhverfismati fyrir Bakkalínur


11.10.2016

Landsnet hefur kynnt sér úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem fellir úr gildi framkvæmdaleyfi Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu 4. Með úrskurði sínum fellst úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ekki á kæru Landverndar um að mat á umhverfisáhrifum 220 kV háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé úrelt eða forsendur fyrir því brostnar.

Ljóst er að úrskurðurinn staðfestir að umhverfismat vegna háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé í fullu gildi og því er ekki þörf á nýju umhverfismati.  Þá staðfestir úrskurðanefndin að öll skilyrði fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi voru fyrir hendi.

Nefndin staðfestir að matið hafi verið ítarlegt og að kostir um mismunandi leiðaval hafi verið metnir með fullnægjandi hætti. Nefndin kemst því að þeirri niðurstöðu að matið sé í fullu gildi og ekki þörf á nýju mati á umhverfisáhrifum auk þess sem framkvæmdirnar séu í samræmi við umhverfismat og skipulag. 

Úrskurðarnefndin staðfestir jafnframt að framkvæmdaleyfisumsókn Landsnets og fylgigögn hafi fullnægt ákvæðum skipulagslaga. Úrskurðarnefndin staðfestir einnig að framkvæmdir Landsnets séu í samræmi við skipulagsáætlanir og að lögbundinna umsagna hafi verið leitað.

Úrskurðarnefndin telur hins vegar annmarka á afgreiðslu og útgáfu Skútustaðahrepps á framkvæmdaleyfi til Landsnets.

Mikilvægt að eyða óvissu

Framkvæmdir hafa legið niðri síðan að þær voru stöðvaðar að kröfu Landverndar þann 21. ágúst síðastliðinn og eru þær tafir sem orðið hafa vegna þess þegar orðnar mjög kostnaðarsamar auk þess sem óvissa ríkir um framhald verkefnisins. Landsnet leggur áherslu á að allri óvissu verði eytt sem fyrst enda eru þær línulagnir sem um ræðir lokaskref framkvæmdar sem hefur verið mörg ár í undirbúningi.

Aftur í allar fréttir