Umtalsvert tjón varð á flutningskerfi Landsnets í óveðrinu sem gekk yfir landið í gærkvöldi og í nótt en flestir notendur eru nú komnir með rafmagn á ný. Tvær línur í byggðalínuhringnum eru laskaðar og er kerfið nú rekið í minni einingum, eða svokölluðum eyjaresktri. Auk þess eru fimm aðrar línur úti og staðfestar skemmdir á sumum þeirra. Vinnuflokkar frá Landsneti undirbúa viðgerðir og eru ýmist farnir af stað eða fara um leið og færi gefst en ófært er enn víða um land og því erfitt um vik
Rangárvallalína 1, milli Varmahlíðar og Akureyrar, er löskuð í Blönduhlíð í Skagafirði. Þar féllu vírarnir á þjóðvegi eitt. Á byggðalínuhringnum er einnig Teigarhornslína 1, milli Hryggstekks í Skriðdal og Teigarhorns, ekki í rekstri.Fimm aðrar línur í byggðalínuhringum eru einnig úti og er óvíst um ástand þeirra. Þetta eru Eyvindarárlína 1, milli Hryggstekks og Eyvindarár við Egilsstaði, Kópaskerslína 1, út á Kópasker, og þrjár línur á Vestfjörðum. Þær eru Ísafjarðarlína 1, milli Breiðadals og Ísafjarðar, Breiðadalslína 1, milli Mjólkárvirkjunar og Breiðadals við Önundarfjörð, og Bolungarvíkurlína 1, milli Breiðadals og Bolungarvíkur. Óljóst er með ástandið á línunum fyrir vestan og fá Vestfirðingar nú rafmagn frá Mjólkárvirkjun og varaaflsstöðvum en staðfest er verulegt tjón á Kópaskerslínu, þar sem að nokkrar staurastæður eru skemmdar, og fá íbúar á svæðinu rafmagn frá varaaflsstöð.
Mesta straumleysið í nótt varð á Norðurlandi, á Eyjafjarðarsvæðinu og Akureyri, þegar bæði Rangárvallalína 1 og Kröflulína 1 leystu út, og á norðanverðum Vestfjörðum. Einnig urðu rafmagnstruflanir víðar um landið, s.s. á Austfjörðum og á Suðurlandi. Orsakir voru fyrst og fremst mjög mikill vindur ásamt ísingu, einkum á Austurlandi og Vestfjörðum.
Ljóst er að mikið tjón hefur orðið á raforkukerfi Landsnets í óveðrinu í nótt en aðaláhersla er nú lög á að viðgerðir. Vinnuflokkar Landsnets hafa verið kanna ástandið í nótt og eru að skipuleggja viðgerðir og taka til varahluti. Víða er erfitt um vik vegna ófærðar en reynt verður að hraða viðgerðum eins og hægt er.