Í gær kom upp bilun í Vestmannaeyjastreng 3 sem er að stærstum hluta sæstrengur og er annar af tveimur sem flytja rafmagn til Vestmannaeyja.
Strax í gærkvöldi hófst bilanaleit og þurfti tímabundið að rjúfa allan rafmagnsflutning til Eyja vegna þess. Vararafstöðvar HS veitna sáu Vestmannaeyjum fyrir rafmagni á meðan.
Fyrstu mælingar benda til að staðsetning bilunar sé í sjó, um miðja vegu milli lands og Eyja. Í dag verður unnið við að staðfesta bilanastað en aðgerðaráætlun fyrir viðgerð er komin af stað.Vestmannaeyjastrengur 1 sér nú einn um að flytja rafmagn til Eyja.