Sterkur grunnur til framtíðar: Ársreikningur 2024 lagður fram


20.02.2025

Framkvæmd

Ársreikningur Landsnets 2024 var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 20. febrúar 2025.

Ársreikningur Landsnets 2024 var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 20. febrúar 2025.

Helstu atriði ársreikningsins:

  • Hagnaður nam 43,1 milljónum USD (5.961,4 millj.kr)1 á árinu 2024 samanborið við 25,6 milljónir USD (3.533,4 millj.kr.) hagnað á fyrra ári.
  • Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 70,5 milljónum USD (9.738,8 millj.kr.) samanborið við 52,7 milljónir USD (7.281,1 millj.kr) á fyrra ári.
  • Handbært fé í lok árs nam 78,8 milljónum USD og handbært fé frá rekstri nam 87,0 milljónum USD.
  • Heildareignir námu 1.236,2 milljónum USD í árslok samanborið við 1.113,6 milljónir USD í lok fyrra árs.
  • Eigið fé nam 574,9 milljónum USD í árslok og eiginfjárhlutfall 46,5%.
  • Arðsemi eigin fjár, á árgrundvelli, var 8,0% á árinu 2024.

 

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets:  

 „Það er ánægjulegt að ársreikningurinn sem samþykktur var í dag sýnir að Landsnet er fjárhagslega sterkt, með trygga afkomu og getu til að greiða eigendum sínum arð. Undanfarin ár hafa verið ár mikilla áskorana og var árið 2024 engin undantekning þar á. Þrátt fyrir eldgos, óveður, orkuskerðingar og aðrar áskoranir vegna stöðu heimsmálanna er rekstur félagsins stöðugur og afkoma ársins samkvæmt áætlunum.  

Á haustmánuðum var staða vatnsmiðlana mjög lág og grípa þurfti til orkuskerðinga. Vegna flutningstakmarkana milli Norður- og Suðurlands gat Landsnet ekki orðið við óskum um orkuflutning milli landshlutanna sem leiddi til aukinna skerðinga.  

Í október varð stór truflun í flutningskerfinu sem olli röskun á afhendingu rafmagns og rafmagnsleysi á Vestfjörðum, Norður- og Norðausturhluta landsins. Það sýndi okkur enn og aftur mikilvægi þess að halda áfram að styrkja flutningskerfið til að tryggja örugga afhendingu raforku til notenda um allt land.  

Í ítrekuðum eldsumbrotum á Reykjanesi reyndi á útsjónarsemi og úthald starfsfólks og verktaka þegar hraun rann undir Svartsengislínu 1 og skemmdi leiðara hennar. Reisa þurfti nýtt mastur og strengja nýja leiðara og náðist að koma línunni í rekstur á skömmum tíma.  

Fjármögnun félagsins á árinu gekk vel en í maí 2024 undirrituðu Landsnet og Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) samning um lán að fjárhæð 50 milljóna USD til að styrkja flutningskerfið. Þetta lán fellur að sjálfbærniviðmiðum bankans og en lánið mun m.a. fjármagna nýtt tengivirki Landsnets er einangrað með grænu gasi, sem er umhverfisvænni kostur en áður hefur verið í boði.

Framundan eru spennandi tímar, við stöndum á sterkum rekstrarlegum grunni sem á sér stoðir í raforkulögum þar sem bæði stöðugleiki og fyrirsjáanleiki er tryggður. Viið erum tilbúin að takast á við þær áskoranir sem eru framundan þegar kemur að styrkingu kerfisins, orkuskiptunum og bættri nýtingu auðlinda.” 

 

Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum bandaríkjadala):

 

 

Rekstrarreikningur

 

  • Rekstrartekjur námu 189,0 milljónum USD árið 2024 samanborið við 169,3 milljónum USD á fyrra ári. Félagið hefur fjögur megin tekjustreymi; flutning til stórnotenda, flutning til dreifiveitna, innmötun og sölu á flutningstöpum og kerfisþjónustu.
  • Rekstrargjöld hækka lítillega milli ára eða um 1,9 milljónir USD.  Afskriftir lækkuðu um 4,1 milljónir USD, launakostnaður hækkaði um 1,5 milljónir USD og annar rekstrarkostnaður hækkaði um 4,5 milljónir USD. 
  • Áhrif gengisbreytinga kemur fram í ákveðnum liðum í íslenskum krónum innan tekna og gjalda, en í heild hefur styrkingin óveruleg áhrif á rekstrarhagnað fyrir fjármagnsliði.
  • Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 70,5 milljónum USD samanborið við 52,7 milljónir USD árið áður og hækkar um 17,8 milljónir USD á milli ára.
  • Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 15,7 milljónum USD en voru 20,5 milljónir USD á fyrra ári. Hrein fjármagnsgjöld lækka því um 4,8 milljónir USD á milli ára.
  • Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 43,1 milljónum USD á árinu 2024. Hagnaður ársins 2023 nam 25,6 milljónum USD.
  • EBITDA félagsins var 106,0 milljónir USD á árinu í samanburði við 92,3 milljónir USD á fyrra ári.

 

Efnahagsreikningur og sjóðstreymi

  • Heildareignir félagsins í árslok námu 1.236,2 milljónum USD samanborið við 1.113,6 milljónir USD í lok fyrra árs.
  • Handbært fé í lok árs nam 78,8 milljónum USD og handbært fé frá rekstri nam 87,0 milljónum USD.
  • Heildarskuldir námu í árslok 661,2 milljónum USD samanborið við 606,1 milljónir USD í lok fyrra árs.
  • Eiginfjárhlutfall í árslok var 46,5% samanborið við 45,6% í lok fyrra árs.


Horfur í rekstri

Áætlanir félagsins fyrir árið 2025 gera ráð fyrir 42 milljóna USD hagnaði af rekstri félagsins. Í tekjuáætlun er byggt á þeim magn- og verðbreytingum sem félagið hafði vitneskju um við gerð áætlunarinnar. Kostnaðaráætlun er byggð á raunkostnaði við rekstur félagsins að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem ákvörðun tekjumarka felur í sér. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að framkvæmdir nemi a.m.k. 131 milljónum USD á árinu. Fjármögnun verkefna er í undirbúningi og telur félagið sig hafa gott aðgengi að lánamörkuðum.

Um ársreikninginn

Ársreikningur Landsnets hf. fyrir árið 2024 er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS). Uppgjör Landsnets er í Bandaríkjadölum (USD) sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Ársreikningurinn var samþykktur á fundi stjórnar 20. febrúar 2025.

Um Landsnet

Landsnet tók til starfa árið 2005 og ber ábyrgð á flutningskerfi raforkunnar, einum af mikilvægustu innviðum samfélagsins. Hlutverk félagsins er að annast flutning raforku á Íslandi, uppbyggingu flutningskerfisins og stjórnun raforkukerfisins.


Nánari upplýsingar gefur Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála og árangurs, netfang gudlaugs@landsnet.is, sími 563-9300. Nánar á www.landsnet.is  þar sem hægt er að nálgast ársreikninginn.

Aftur í allar fréttir