Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2015


13.08.2015

Framkvæmd

Hagnaður tímabilsins nam 1.573 milljónum króna.

Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.573 mkr.  fyrstu 6 mánuði ársins 2015 samanborið við hagnað að fjárhæð 1.231 mkr. fyrir sama tímabil árið 2014.   Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 5.239 mkr. samanborið 4.446 mkr. á sama tímabili fyrra árs og hækkar um 793 mkr. á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.863 mkr. á tímabilinu en voru 1.565 mkr. á sama tímabili ársins 2014. Hrein fjármagnsgjöld hækka því um 298 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2015 í samanburði við sama tímabil 2014.

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 26,9% samanborið við 23,5% í lok ársins 2014. Eigið fé í lok tímabilsins nam 20.782 mkr. samanborið við 19.208 mkr. í lok árs 2014. Heildareignir félagsins í lok júní námu 77.138 mkr. samanborið við 81.859 mkr. í lok árs 2014. Heildarskuldir námu 56.356 mkr.  samanborið við 62.651 mkr. í lok árs 2014. 

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 7.335 mkr. Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 3.300 mkr.

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 13. ágúst 2015.

Frekari upplýsingar veitir: 
Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is

Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum króna) Tafla.pdf

Aftur í allar fréttir