Elma orkuviðskipti og Nord Pool koma á fót skammtímamarkaði á Íslandi
Skammtímamarkaður Elmu mun í fyrstu bjóða uppá uppboðsmarkað með dags fyrirvara (e.day-a-head) og stefnir í framhaldinu að bæta við viðskiptum innan dagsins (e.intraday market). Um er að ræða viðbót við vöruframboð Elmu orkuviðskipta, sem nýverið tók upp rafrænt uppboðskerfi fyrir langtímasamninga í samstarfi við króatísku kauphöllina fyrir raforku.
Tom Darell, forstjóri Nord Pool, fagnar tilkomu nýs raforkumarkaðar á Íslandi: „Við erum ánægð með að hafa landað samningi í kjölfar samkeppnishæfs ferlis Elmu orkuviðskipta, um samstarf að koma á fót virkum viðskiptavettvangi fyrir raforku fyrir skammtíma raforkuviðskipti. Að starfrækja skipulagðan orkumarkað – virkan viðskiptavettvang - í fyrsta sinn er stórt framfaraskref fyrir Ísland sem mun hafa í för með sér ávinning hvað varðar skilvirkni, gagnsæi, áreiðanleika fjárfestingarmerkja og eflingu afhendingaröryggis. Nord Pool teymið allt hlakkar til að vinna náið með Elmu og gera framtíðarsýn fyrirtækisins um að koma á hagkvæmum og öruggum orkuviðskiptum á Íslandi að veruleika.”
Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Elmu, tekur í sama streng og bætir við: ,,Við hjá Elma fögnum því að hafa gengið frá samningi sem hjálpar okkur að koma á fót virkum viðskiptavettvangi með skýru verðmerki á markaði sem veitir upplýsingar um stöðuna á orkumarkaði – Kauphöll orkuviðskipta. Þetta er stórt skref fyrir Ísland, álíka því þegar Verðbréfaþing Íslands var stofnað (nú Nasdaq Ísland) sem og fiskmarkaðir. Með því að bjóða uppá traustan og gagnsæjan viðskiptavettvang mun Elma taka virkan þátt í að búa til samkeppnishæft umhverfi þar sem verðmyndun er gagnsæ. Slíkt umhverfi stuðlar að nýsköpun, ýtir undir orkunýtni og styður við aukið orkuöryggi. Við hjá Elmu erum spennt fyrir samstarfi með Nord Pool, sem er leiðandi kauphöll með raforku í Evrópu. Með stofnun slíks markaðar erum við að nýta orkuna okkar miklu betur og þannig taka þátt í hringrásarhagkerfi”
Stefnt er að því að fara í loftið í ársbyrjun 2025 og á þeim tímapunkti mun Elma bjóða uppá uppboðsmarkað fyrir lengri og skemmri vöru – alla virðiskeðjuna á orkumarkaði.
Um Elmu: Elma orkuviðskipti er leiðandi í starfrækslu virks og skipulagðs viðskiptavettvangs fyrir raforku á íslandi og hefur það að leiðarljósi að styðja við stefnu stjórnvalda um fjölbreytt og sjálfbært orkukerfi.
Elma býður uppá rafrænan uppboðsmarkað fyrir langtímasamninga í samstarfi við Cropex Power Exchange og er samhliða að innleiða viðskiptakerfi fyrir skammtímamarkað í samstarfi við Nord Pool, leiðandi þjónustuaðila í Evrópu. Á skammtímamarkaði gegnir Elma hlutverki miðlægs mótaðila, sem tryggir öryggi og gagnsæi fyrir alla þátttakendur. Viðskiptin fela í sér klukkustundar vöru með dags fyrirvara. Þetta kerfi tryggir aukið öryggi og gagnsæi fyrir alla markaðsaðila og mun leiða til skýrari verðmyndunar.
Elma, sem er dótturfélag Landsneta hf., styður við nýjungar og fjölbreytni í framleiðslu raforku, svo sem vind- og sólarorku, auk annarra nýjunga.
https://www.elma.is/
Nánari upplýsingar veita:
Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Elmu katrinolga@elma.is, sími 8926474
Irene Zeier, Communication Director Nord Pool Irene.Zeier@nordpoolgroup.com M: +47 90579250