Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Hraunavina, Landverndar, Landgræðslu- og umhverfisverndarsamtaka Íslands og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands um að fella úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga frá 30. júní 2023 að veita Landsneti framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2.
Þar með eru öll framkvæmdaleyfi á línuleiðinni í höfn og samið hefur verið við stærsta hluta landeigenda en hjá ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsmála liggur fyrir beiðni um heimild til eignarnáms á hluta þriggja jarða sem línan liggur um og ósamið er við.
Undirbúningur fyrir framkvæmdir gengur vel og fram undan er að bjóða út efni í loftlínur en innkaupum á jarðstreng er lokið. Ef allt gengur að óskum verður jarðvinna boðin út i vor og framkvæmdir við þessu mikilvægu línu, Suðurnesjalínu 2, munu hefjast síðsumars.
Hér er hægt að lesa úrskurðinn.