Egill og Sara Lind nýir forstöðumenn


31.07.2026

Framkvæmd

Egill Tómasson og Sara Lind Guðbergsdóttir hafa verið ráðin forstöðumenn og hefja störf á næstunni.

Egill Tómasson forstöðumaður stefnu og fjárfestinga

Egill ber ábyrgð á stjórnun lykilverkefna þvert á fyrirtækið, svo sem innleiðingu nýrra áherslna eða stefnumála, ásamt forgangsröðun fjárfestinga, miðlægri áhættustýringu og umsjón sjálfbærnimála.

Egill kemur til Landsnets frá Landsvirkjun þar sem hann starfaði sem sérfræðingur í viðskiptagreiningu og þróun markaða á sviði sölu og þjónustu. Þar studdi hann farsæla ákvarðanatöku fyrirtækisins með fjölbreyttum greiningum á innlendum og erlendum orkumörkuðum, stýrði verkefnum um þróun og raforkuöryggi íslensks raforkumarkaðar og kom að samningagerð við núverandi og nýja viðskiptavini. Fyrir tíma sinn hjá viðskiptagreiningu starfaði Egill á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun við viðskiptaþróun, nýsköpun, verkefnastjórn, verkefnaþróun og ráðgjöf.

Þar áður starfaði hann sem sérfræðingur í orkumálaráðgjöf hjá Eflu og sem rafmagnsverkfræðingur hjá Verkís.

Egill er með BSc-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands, MSc-gráðu í kerfaverkfræði frá Boston-háskóla í Bandaríkjunum og doktorsgráðu í raforkuverkfræði með áherslu á greiningu raforkumarkaða, raforkuhagfræði og raforkuöryggi frá KTH í Stokkhólmi í Svíþjóð. Þá var Egill einnig um tíma gestarannsakandi við hagfræðideild Stanford-háskóla í Bandaríkjunum. Samhliða vinnu og námi hefur Egill verið reglulegur stundakennari við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, ásamt því að leiðbeina nemum við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Sara Lind Guðbergsdóttir forstöðumaður lögfræði og stjórnkerfa

Sara ber ábyrgð á stjórnun lögfræðimála og rekstri og umbótum innri sem ytri stjórnkerfa.

Sara kemur til Landsnets frá svissneska fyrirtækinu Climeworks þar sem hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri á Íslandi. Þar bar hún ábyrgð á þróun starfseminnar hér á landi, samskiptum við stjórnvöld og lykilhagsmunaaðila, stjórnarháttum og stefnumótun.

Áður var Sara forstjóri Ríkiskaupa þar sem hún leiddi umfangsmiklar umbætur á starfsemi stofnunarinnar og stýrði þróun opinberra innkaupa með áherslu á skilvirkni, fagmennsku og aukið virði fyrir opinbera aðila. Hún gegndi jafnframt embætti setts orkumálastjóra þar sem hún leiddi verkefni á sviði einföldunar leyfisveitinga. Þar áður starfaði hún hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem hún veitti stjórnendum ríkisstofnana ráðgjöf um breytingastjórnun, stjórnun, rekstur og mannauðsmál. Hún fór jafnframt fyrir stýrihópi um undirbúning sameiningar stofnana á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála og sat um árabil í samninganefnd ríkisins við gerð kjarasamninga.

Sara er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið framhaldsnámi á sviði leiðtogafærni, ákvarðanatöku og breytingastjórnunar. Hún situr í stjórn Gildis lífeyrissjóðs og hefur áður gegnt stjórnarstörfum, meðal annars hjá Vinnueftirlitinu. Á ferli sínum hefur hún leitt stefnumótun, stjórnarhætti og umfangsmikil breytinga- og umbótaverkefni í bæði opinberum rekstri og alþjóðlegu fyrirtæki.

 

Ríkarður Ríkarðsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, býður Egil og Söru velkomin til starfa og segir að saman muni þau ásamt góðum hópi hjá Landsneti og samstarfsaðilum takast á við mikilvæg verkefni hjá fyrirtækinu.

„Þau tengjast nýjum áherslum, tækifærum og áskorunum í áframhaldandi uppbyggingu flutningskerfis raforku og aukinni verðmætasköpun og öryggi þess, segir Ríkarður.“

Aftur í allar fréttir