Raforkuspá Landsnets er að koma út í annað sinn í ár og er spá um raforkunotkun og raforkuframboð yfir tímabilið 2024 – 2050.
Landsnet hefur gefið út nýja raforkuspá fyrir tímabilið 2024-2050. Hún nær bæði yfir þróun eftirspurnar eftir raforku á Íslandi sem og spá um þróun á framboði á raforku. Þetta er í annað sinn sem Landsnet gefur út raforkuspá undir eigin nafni en hún kom fyrst út fyrir ári síðan og var þá fyrsta raforkuspá á Íslandi sem bæði innihélt spá um eftirspurn og framboð á raforku.
Hér má lesa nánar um raforkuspá Landsnet.