Kerfisáætlun Landsnets 2025–2034 samþykkt


10.04.2026

Framkvæmd

Raforkueftirlitið hefur samþykkt kerfisáætlun fyrir tímabilið 2025–2034. Með samþykktinni liggur fyrir formleg staðfesting á áætlun um uppbyggingu og þróun flutningskerfis raforku á Íslandi næsta áratuginn.

Kerfisáætlunin er lykilverkfæri í því að tryggja að flutningskerfið geti mætt vaxandi raforkuþörf og stutt við orkuskipti og efnahagslega þróun um land allt. Í henni er lögð áhersla á styrkingu meginflutningskerfisins, bætt afhendingaröryggi og aukna flutningsgetu milli landshluta.

Kerfisáætlun inniheldur framkvæmdaáætlun til næstu þriggja ára og skapar samþykkt áætlunarinnar skýrari ramma til að hrinda nauðsynlegum verkefnum í framkvæmd á næstu árum. Á sama tíma undirstrikar hún mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar flutningskerfisins til að mæta auknum kröfum samfélagsins um örugga og áreiðanlega raforku.

Á grundvelli kerfisáætlunarinnar munum við halda áfram að vinna að uppbyggingarverkefnum í nánu samráði við hagaðila og stuðla þannig að því að raforkukerfið verði áfram traustur burðarás samfélagsins.

Aftur í allar fréttir