Ný gjaldskrá tók gildi 1. mars


06.03.2025

Framkvæmd

Nýlega var innmötunargjald endurgreitt til raforkuframleiðenda og í kjölfarið höfum við endurmetið gjaldskrána til að tryggja stöðugleika. Þetta endurmat hefur hvorki áhrif á gildandi tekjumörk sem Raforkueftirlitið hefur sett Landsneti né á heildartekjur fyrirtækisins.

Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hækka gjaldskrá til dreifiveitna um 9,30% frá og með 1. mars 2025 sem mun að öðru óbreyttu ganga til baka 1. mars 2026.

Þegar innmötunargjaldið var tekið upp árið 2022 var gjaldskrá til dreifiveitna lækkuð. Nú er hún hækkuð um sömu fjárhæð samhliða endurgreiðslu innmötunargjaldsins til framleiðenda. Sumir framleiðendur hafa jafnframt gefið út að þeir muni skila endurgreiðslunni áfram til sinna viðskiptavina. Það er því von Landsnets að raforkunotendur verði svo til jafnsettir og ef innheimta innmötunargjaldsins hefði ekki farið fram á núgildandi tekjumarkatímabili.

Flutningskostnaður er um 15% af heildar rafmagnsreikningi heimilanna og eru áhrifin á meðalheimili 1,4% hækkun. Það þýðir að ef heimili greiðir 9.000 kr. á mánuði í heildar rafmagnsreikning, þá nemur hækkunin um 126 kr. á mánuði.

Aðrar upplýsingar um flutningsgjaldskrá er að finna á eftirfarandi síðum á vef okkar:

Flutningsgjaldskrá Landsnets
Gjaldskrá og reiknivélar

Aftur í allar fréttir