Sköpum virði fyrir samfélagið með öruggum og sjálfbærum rekstri: Sjálfbærni-, árs og frammistöðuskýrsla 2024 er komin út


04.03.2025

Framkvæmd

Sjálfbærni-, árs- og frammistöðuskýrslan okkar fyrir árið 2024 veitir skýra mynd af árangri Landsnets á árinu. Hún sýnir hvernig við tryggjum traustan raforkuflutning, eflum afhendingaröryggi og vinnum að sjálfbærri framtíð.

Árið einkenndist af náttúruhamförum, óveðri og umbreytingum í orkumálum, en með markvissri stefnu og uppbyggingu höfum við haldið áfram að styrkja raforkuflutningskerfið.

Hjá okkur starfar úrvalshópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun sem vinnur að áhugaverðum verkefnum sem lúta að uppbyggingu, þróun og rekstri raforkukerfisins. Skýrslan er full af upplýsingum og fróðleik um það mikilvæga starf sem okkar fólk lagði að mörkum árið 2024.

Sjálfbærniáherslur og nýr staðall

„Við stöndum á tímamótum á vegferð orkuskipta, þar sem markmið stjórnvalda er að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Í því samhengi skiptir skynsamleg og sjálfbær uppbygging raforkuflutningskerfisins gríðarlega miklu máli. Áhersla er á umhverfis-og loftlagsmál, ábyrga starfshætti og samfélagsábyrgð í okkar sjálfbærnistefnu og framtíðarsýn. Við tókum ákvörðun um að fylgja nýjum kröfum Evrópusambandsins um gerð sjálfbærniskýrslu fyrir árið 2024 með yfirfærslu í ESRS-staðal en það verður krafa á næsta ári. Framundan eru spennandi tímar þar sem sjálfbærni mun skipa enn stærri sess í okkar starfsemi og mun hafa áhrif á hvernig við byggjum flutningskerfið upp og flytjum raforku til framtíðar„ segir Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri Mannauðs og umbóta hjá Landsneti.

Skýrslan er aðgengileg á vefnum okkar.

Aftur í allar fréttir