Gjald vegna flutningstapa lækkar


18.03.2025

Framkvæmd

Þann 1. apríl verða gerðar breytingar á flutningsgjaldskrá vegna flutningstapa.

Gjaldskrá Landsnets vegna flutningstapa endurspeglar innkaupsverð raforku hverju sinni. Innkaupsverð Landsnets á flutningstöpum er mismunandi milli ársfjórðunga þar sem raforkuverð sveiflast eftir árstíðum.

Landsnet hefur keypt orku vegna grunntapa fyrir heilt ár yfir tímabilið júlí 2024 til júní 2025 þar sem mikilvægt er að tryggja grunntöp fram á mitt næsta ár vegna óvissu um raforkuframboð. Hefðbundið útboð fyrir viðbótartöp hefur einnig farið fram fyrir annan ársfjórðung 2025. Gjald vegna flutningstapa lækkar og fer úr 216,82 kr. á MWst og verður 190,58 kr. á MWst. frá og með 1. apríl 2025.

Aðrir gjaldskrárliðir munu haldast óbreyttir.

Aftur í allar fréttir