Framtíðin var í gær …

- tími aðgerða er núna.

Vorfundur Landsnets, Silfurbergi Hörpu, fimmtudaginn 28.apríl 08.30 – 10.30. 

Þegar hafist var handa við uppbyggingu byggðalínu fyrir 50 árum stóð íslenska þjóðin frammi fyrir vandamálum sem ekki voru ólík þeim sem við erum að kljást við nú. Olíukreppa erlendis og orkuskortur innanlands gerðu atvinnulífi og heimilum erfitt fyrir á sama tíma verið var að fjárfesta í orkuskiptum.

Á vorfundinum okkar þann 28.apríl verður mikilvægi flutningskerfisins í orkuskiptum til umfjöllunar. Til að orkuskipti geta orðið er ekki nóg að vinna raforku, heldur verður hún að skila sér með öruggum og hagkvæmum hætti til notenda.

Á fundinum verður leitað svara við því hvaða afleiðingar veikt flutningskerfi geti haft og kosti þess að styrkja kerfið. Hvaða áskoranir blasa við og hvernig tökumst við á við þær? Öflugt flutningskerfi er grundvallarforsenda græns hagkerfis og það er kominn tími til aðgerða.

DAGSKRÁ

Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Opnunarávarp

Guðmundur Ingi Ásmundsson, Forstjóri Landsnets
Framtíðin var í gær

Ari Trausti Guðmundsson, Jarðeðlisfræðingur
Áskoranir í orkumálum

Írís Baldursdóttir, Ráðgjafi stýrihóps um stefnumótun hjá ENTSO-E
Á tímum umbreytinga – evrópsk raforkuflutningsfyrirtæki í miðjum orkuskiptum

Sigrún Jakobsdóttir, Stjórnarformaður Landsnets
Tími aðgerða er núna