Öryggis-, heilsu- og vinnuverndarstefna
FRAMTÍÐARSÝNIN ER
Við stefnum að því alla daga að efla öryggis- og heilsuvitund hjá starfsfólki til að skapa heilsusamlegt vinnuumhverfi og slysalausan vinnustað.
ÁHERSLA ER Á
- Að vinnubrögð endurspegli öryggi og vellíðan á vinnustaðnum og að fyrirtækjamenning Landsnets spegli þá áherslu sem lögð er á að starfsfólk sé meðvitað um að heilsa og öryggi þess hefur alltaf forgang.
- Stöðugar umbætur og eftirfylgni sem nær til allrar starfseminnar með skilvirkni ferla að markmiði.
- Við stuðlum saman að fyrirtækjamenningu sem styður starfsfólk í að leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir slys, dauðsföll og veikindi, bæði andleg og líkamleg.
- Við leggjum áherslu á heilsuvernd, persónu- og rekstraröryggi.
- Við beitum þekktum aðferðum til að koma auga á, meta og stjórna áhættum og ef verkið er ekki öruggt finnum við örugga leið.
- Við berum öll ábyrgð á eigin öryggi, skiljum þær öryggis-, heilbrigðis- og vinnuumhverfisáhættur sem fylgja starfsemi okkar og ábyrgð stjórnenda er skýr.
Virði öryggismála
- Að starfsfólk komi heilt heim frá vinnu
- Faglegri vinnubrögð
- Góður undirbúningur verka og framkvæmda
- Ánægðara starfsfólk
Útgefið í janúar 2024
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR