Gæðastefna Landsnets

Við leggjum áherslu á skilvirkni og þjónustu við innri og ytri aðila. Bregðumst hratt við ábendingum, einkum frábrigðum í starfseminni. Við beitum umbótahugsun sem leiðir til meiri gæða.

Áhersla er á

  • Að viðhalda stjórnunarkerfi og tryggja samfelldan rekstur sem styður við áhættumat.
  • Stöðugar umbætur og eftirfylgni sem nær til allrar starfseminnar með skilvirkni ferla að markmiði.
  • Fræðslu og sjálfvirknivæðingu. Umbótahugsun er til staðar sem hluti af starfi hvers og eins, sem og hæfni starfsfólks til að koma auga á og bregðast við umbótatækifærum.
  • Að auka ánægju viðskiptavina með því að viðhalda vottuðu gæðastjórnunarkerfi.

Virði gæðastjórnunar

  • Meiri skilvirkni með skráðu og stöðluðu verklagi í stjórnunarkerfi.
  • Með skráðu og stöðluðu verklagi minnkar sóun, sem dæmi tími og peningar.
  • Minni líkur á endurteknum frábrigðum með skráningu og úrvinnslu ábendinga.
  • Með skráðu verklagi er tryggt að þekking viðhaldist.
  • Ánægðari viðskiptavinir.

Útgefin í desember 2024.