Siðareglur Landsnets
Við hjá Landsneti viljum vera heiðarleg, réttsýn og sanngjörn hvert við annað og leggja okkar af mörkum til að vera áreiðanleg og traust í samskiptum við samfélagið sem við vinnum fyrir. Til stuðnings því höfum við sett okkur siðareglur sem ætlað er að efla traust og tiltrú okkar á milli, á okkur sjálf og verkefni okkar.
Siðareglurnar eru viðbót við lög, reglur, verklagsreglur og annað opinbert regluverk og veita leiðsögn á þeim sviðum þar sem slík viðmið ná ekki til. Siðareglur Landsnets ná til alls starfsfólks fyrirtækisins, þar með talið stjórnarmanna og forstjóra, og eru leiðarljós í störfum okkar.
Mikilvægt er að við séum öll meðvituð um efni siðareglna og íhugum hvort ákvarðanir okkar og hegðun standist þau viðmið sem þar koma fram og hvort þau hafi áhrif á orðspor Landsnets.
Ekki hika við að leita ráðgjafar ef eitthvað er óljóst. Öll berum við ábyrgð á því að virða siðareglurnar og vinna að framgangi þeirra.
Virðing, ábyrgð og samvinna
Tileinkum okkur jákvæða og umburðarlynda afstöðu gagnvart skoðunum og störfum annarra, vinnum sem liðsheild og hlustum á ólík sjónarmið. Sinnum störfum okkar af ábyrgð og í samræmi við það mikilvæga samfélagslega hlutverk sem Landsnet gegnir, með gildi Landsnets að leiðarljósi.
- Við gætum gætum þess að framkoma og hegðun sé í samræmi við hlutverk og framtíðarsýn Landsnets.
- Við kynnum okkur og virðum reglur um réttindi, skyldur og vinnulag samkvæmt lögum, reglum, leiðbeiningum og stjórnunarkerfum Landsnets.
- Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, gagnrýna hugsun og málefnalegan rökstuðning.
- Við gagnrýnum með uppbyggilegum hætti og beinum ábendingum til þeirra sem málið varðar.
- Við gætum trúnaðar um málefni sem við fáum vitneskju um í störfum okkar og förum með persónuupplýsingar af varfærni.
Starfsumhverfi og menning
Jafnrétti er eitt af leiðarljósum í starfi okkar og grundvöllur fjölbreytni og virðingar á vinnustaðnum. Vinnubrögð sem skapa traust og trúverðugleika eru lykill að góðum árangri og áhersla er lögð á kurteisi, réttsýni, virðingu og samvinnu.
- Við misnotum ekki valdastöðu okkar.
- Við styðjum og eflum menningu sem byggir á jafnrétti, fjölbreytileika og gagnkvæmri virðingu.
- Við tökum ekki þátt í einelti, áreitni eða ofbeldi og erum á varðbergi gagnvart slíkri háttsemi.
- Við styðjum jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun Landsnets.
- Við gætum að orðspori Landsnets í samskiptum, bæði í starfi og utan þess.
Hagkvæmni og kostnaðaraðgát
Höfum hagkvæmni og kostnaðaraðgát að leiðarljósi og förum vel með þau verðmæti sem okkur er trúað fyrir.
- Við leitum hagkvæmustu leiða í ákvörðunum, með öryggi og gæði að leiðarljósi.
- Við horfum til hagsmuna félagsins umfram okkar eigin og þiggjum ekki gjafir sem kunna að hafa áhrif á ákvarðanir okkar.
- Við förum vel með fjármuni og eignir félagsins og nýtum þær ekki til einkanota nema slíkt sé sérstaklega heimilað.
- Við upplýsum yfirmenn ef eitthvað má betur fara í rekstri félagsins.
Samskipti, upplýsingagjöf og gagnsæi
Vinnum að því að skapa sátt um hlutverk og starfsemi okkar með stöðugu samtali við hagaðila, samtali sem einkennist af hreinskilni, ábyrgð, víðsýni, gagnkvæmri virðingu og samstarfsvilja. Við sýnum frumkvæði í upplýsingagjöf og orðræða okkar um Landsnet á opinberum vettvangi einkennist af gildum okkar; samvinnu, virðingu og ábyrgð.
- Við upplýsum á gagnsæjan hátt forsendur og mat stærri fjárfestingakosta.
- Við eigum faglegt og uppbyggilegt samstarf við stjórnvöld, eftirlitsstofnanir og aðra hagaðila.
- Gagnsæi er tryggt með aðgengilegum upplýsingum um starfsemi, hlutverk og framtíðarsýn félagsins.
- Við vinnum með gögn á öruggan hátt og erum meðvituð um upplýsingatækniáhættur.
Heilindi og hagsmunatengsl
Hugum að hagsmunaárekstrum sem geta orðið vegna beinna eða óbeinna hagsmuna í tengslum við ákvörðun sem þarf að taka.
- Við gætum hlutleysis í samskiptum við viðskiptavini, birgja, hluthafa og aðra sem félagið hefur samskipti við.
- Við upplýsum yfirmann fyrir fram ef hætta er á hagsmunaárekstri, t.a.m. ef ljóst er að fjölskyldumeðlimur er einn af viðskiptavinum fyrirtækisins, samkeppnisaðili eða ráðgjafi.
- Við leitum ekki upplýsinga um samstarfsfólk, hagaðila eða viðskiptavini í gagnasöfnum nema þörf krefji vegna starfsins.
- Við meðhöndlum trúnaðarupplýsingar af kostgæfni.
Umhverfisvitund
Vinnum í sátt við samfélagið og leggjum áherslu á samfélagsábyrgð og lágmörkun umhverfisáhrifa.
- Við göngum vel um náttúruna og lágmörkum umhverfisáhrif.
- Við höfum sjálfbærni að leiðarljósi og forðumst sóun.
- Við sýnum gott fordæmi í daglegri umgengni.
- Við leggjum áherslu á uppbyggingu og rekstur raforkuflutningskerfis til hagsbóta þjóðarinnar en horfum ekki til hagsmuna einstakra aðila eða hópa.
Samkeppni og hömlur
Landsnet er ekki í samkeppni á sviði raforkuflutnings og því þurfum við að vera vakandi fyrir því að beita ekki markaðsvaldi, misnota markaðsupplýsingar eða viðhafast nokkuð annað sem getur hamlað samkeppni á raforkumarkaði. Gætum trúnaðar um upplýsingar er varða viðskiptahagsmuni og aðrar þær upplýsingar sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari.
- Við verndum trúnaðarupplýsingar.
- Við nýtum ekki slíkar upplýsingar í eigin þágu, óháð því hvernig þær berast okkur.
Persónuöryggi, heilsa og vinnuumhverfi
Tryggjum öruggan rekstur og tökum aldrei áhættu varðandi persónuöryggi.
- Við hefjum hvert verk með öryggi og heilsu í huga.
- Við stöðvum vinnu ef aðstæður eru óöruggar.
- Við bendum hvert öðru á það sem betur má fara í öryggismálum.
Viðbrögð við háttsemi og erindum
Forsenda virkni siðareglna er að þeim sé fylgt. Teljum við grun um misgjörðir eða ólögmæta háttsemi skal leggja fram ábendingu til yfirmanns, framkvæmdastjóra, mannauðsstjóra, forstjóra eða stjórnar. Einnig getur starfsfólk eða almenningur tilkynnt um misferli eða óæskilega hegðun á heimasíðu Landsnets í gegnum Whistleblower kerfið.
Landsnet hf. lítur á allar ábendingar sem verðmæti, enda geti þær leitt til bættrar þjónustu, samskipta eða lágmarkað hugsanlegan skaða. Starfsfólk geldur ekki fyrir ábendingar um brot á siðareglum eða fyrir að leita réttar síns telji það á sér brotið. Þessi leið styður við lög um vernd uppljóstrara.
- Við fylgjum framangreindum siðareglum af kostgæfni og störfum í anda þeirra enda vitum við að ekki er hægt að setja fram tæmandi siðareglur um öll atvik sem upp geta komið í starfseminni.
- Við erum, í samræmi við stöðu okkar og hlutverk, ábyrg fyrir athöfnum okkar og gjörðum og gætum að því fyrir okkar leyti að farið sé eftir reglunum.
- Yfirmenn kynna starfsfólki reglur sem um starfið gilda og ganga á undan með góðu fordæmi.
Útgefið 27.01. 2026
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR