Vorfundur Landsnets var haldinn fyrir fullum Norðurljósasal í Hörpu miðvikudaginn 5. mars.
Yfirskrift fundarins – Magnast spennan? Orkuöryggi á óvissutímum – vísaði annars vegar í hvort tækist að uppfæra flutningskerfið í hærra spennustig ,og bæta þannig orkuöryggi þjóðarinnar, og hins vegar til meiri óvissu og spennu í alþjóðamálum og hvaða áhrif það getur haft á Ísland og orkuöryggi þjóðarinnar.
Fundurinn markaði líka tímamót þar sem Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets flutti sitt síðasta erindi sem forstjóri á fundinum en hann lætur af störfum í haust.
Hér fyrir neðan er hægt að horfa á upptöku frá fundinnum og skoða kynningar frá þeim sem ávörpuðu fundinn.