Vegamótalína 2 mun liggja frá tengivirkinu á Vatnshömrum í Borgarfirði til Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV.
Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og auka afhendingaröryggi. Í dag er Vegamótalína 1 eina tenging flutningskerfisins fyrir Snæfellsnes.
Með Vegamótalínu 2 skapast betri skilyrði til viðhalds og áframhaldandi reksturs Vegamótalínu 1 og mun hún standa áfram. Eins og með allar eldri línur mun Vegamótalína 1 fara á endurnýjunaráætlun.
Í tilfelli Vegamótalínu 2 er jarðstrengur ekki möguleg lausn, hvorki að hluta til né alla leið. Ástæða þessa er að jarðstrengir framleiða launafl sem veldur spennuhækkun. Kerfið á Snæfellsnesi er nú þegar við efri spennumörk og ræður ekki við frekari hækkun.
Hægt er að skrá sig á póstlista til að fá fréttir af framkvæmdum Vegamótalínu 2.
Opnir fundir um valkosti fyrir Vegamótalínu 2
Við bjóðum til opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Borgarbyggð og Vegamóta á Snæfellsnesi.
- Hótel Hamar í Borgarnesi: 7. október kl. 20:00
- Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi: 12. október kl. 20:00
Á fundunum kynnum við verkefnið og vinnuna fram undan. Að kynningu lokinni verður unnið í smærri hópum þar sem þátttakendur geta komið á framfæri hugmyndum að línuleiðum og bent á helstu áskoranir við leiðarval á svæðinu.
Markmiðið er að fá fram ólík sjónarmið snemma í ferlinu. Allar tillögur verða metnar út frá sömu forsendum, meðal annars með tilliti til umhverfis, öryggis og hagkvæmni, verðmæta og samfélags.
Valkostagreiningin fer fram áður en hið lögbundna umhverfismatsferli hefst og mun nýtast við rannsóknir og frekari greiningar verkefnisins.
Við hvetjum öll sem láta sig málið varða til að mæta og taka þátt í samtalinu.