Framkvæmd

Verkefnið felur í sér byggingu nýs yfirbyggðs tengivirkis að Klafastöðum sem er núverandi staðsetning launaflsvirkis Landsnets sem gangsett var árið 2013. Hið nýja tengivirki verður 220 kV tengivirki með 7 rofareitum.   Þá verður núverandi 220 kV þéttavirki á Brennimel flutt til Klafastaða og inn í rofasal núverandi launaflsvirkis á Klafastöðum.

Jafnframt verða loftlínur færðar tímabundið í tengslum við framkvæmdina og hluti þeirra tengdur inn í nýja virkið í lok framkvæmda.

Framkvæmdir við línubreytingar hófust haustið 2023. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir byggingu tengivirkis hefjist 2025 og að þeim ljúki 2026.

Tengiliðir

Pétur Örn Magnússon
Verkefnastjóri
563 9300
Bjarni Jónsson
Verkefnastjóri
563 9300
Daníel Sch. Hallgrímsson
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging
VEL-08

Í framkvæmd
Aftur í yfirlit framkvæmda