Fyrr í kvöld sló Norðurál út og við það kom högg á kerfið. Yfir 700 Megavött (MW) sem fóru út á augabragði sem telst gríðarlega stórt högg á flutningskerfið.
Flutningskerfið skipti sér upp í Blöndu á Hólum. Enginn notandi varð rafmagnslaus á því svæði utan spennir Rarik á Teigarhorni á Austurlandi leysti út og leysti Mjólkárlína 1 út og við það einangruðust Vestfirðir frá flutningskerfinu. Varaaflsvélar í Bolungarvík fóru í gang og rafmagnsleysi á norðarverðum Vestfjörðum varð skammvinnt á meðan þær voru að ræsa sig í gang. Sunnanverðir Vestfirðir urðu ekki fyrir rafmagnsleysi en skerðanlegir notendur duttu út.
Íbúar víða um land urðu varir við spennuhöggið í formi blikks á ljósum. Ekkert rafmagnsleysi varð á höfuðborgarsvæðinu við truflunina.
Varnir kerfisins sem settar eru upp fyrir slíka viðburði virkuðu og skiptu kerfinu í tvo hluta, sem gerir stýringu og uppbyggingu flutningskerfis auðveldari.
Kerfið er komið í jafnvægi og engir notendur er rafmagnslausir.
Orksakir truflanarinnar er ekki ljósar enn sem komið er.