Ísland og útlönd
Það hefur ekki farið fram mikil umræða hérlendis um stefnumótun vegna lagningar jarðstrengja þó svo hún hafi skotið upp kollinum í tengslum við umdeild verkefni.
Landsnet hefur kallað eftir slíkri stefnumótun en þar til þær línur skýrast hefur fyrirtækið markað sér þá framkvæmdastefnu að á 220 kV spennu og hærri verði línur nær undantekningarlaust ekki lagðar í jörð sökum mikils kostnaðar og samfélagslegra áhrifa. Þetta er í fullu samræmi við það sem almennt tíðkast erlendis. Jafnframt hefur Landsnet lagt lið rannsóknum á samfélagslegum kostnaði raforkulína og stutt fjárhagslega bæði verkefni í hagfræðideild Háskóla Íslands og rannsóknir á vegum Stofnunar Sæmundar fróða.
Stefnumótun fyrirliggjandi víða erlendis
Víða erlendis hefur verið töluverð umræða um stefnumótun vegna lagningar jarðstrengja og ákvarðanir teknar. Í Noregi drógu stjórnvöld t.d. til baka ákvörðun flutningsfyrirtækisins Statnett um umdeildar háspennulínur yfir Harðangursfjörð og nágrenni, eitt fegursta landsvæði Noregs. Skipaðar voru fjórar rannsóknarnefndir til að kanna hvort flutningsfyrirtækið hefði logið að almenningi, eins og fullyrt var, en niðurstaðan var í meginatriðum sú að Statnett var hreinsað af þessum ásökunum.
Upplýsingabanki
Til að veita innsýn í umræðuna, bæði heima og erlendis, eru helstu sjónarmið stjórnvalda, flutningsfyrirtækja, hagsmunaðila og fræðimanna dregin saman hér fyrir neðan, ýmist eftir löndum, ríkjabandalögum eða alþjóðlegum samtökum og stofnunum. Þá er upplýsingum um Harðangursdeiluna haldið sérstaklega til haga í norsku samantektinni.
Frekari ábendingar eru vel þegnar á netfangið linurogstrengir[hjá]landsnet.is.
| Ísland |
Noregur | Danmörk | Finnland | Svíþjóð |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Þýskaland |
Belgía |
Sviss | ||
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Kanada |
Nýja Sjáland |
|||
![]() |
![]() |
![]() |
||
Alþjóðleg og |
evrópsk samtök |
|||
![]() |
![]() |
![]() |
||















